Óvinsældir forsetans og annarra

February 27th, 2009

Það kemur mér ekkert mikið á óvart lengur þegar að að RÚV eða aðrir bláir fjölmiðlar slá því upp sem fyrstu frétt tíufréttanna hvað allir séu óánægðir með forsetann. En ég gat ekki annað en hrist hausinn og glott þegar að fréttamaður var búinn að kryfja óvinsældir forsetans til mergjar. Þá bætti hann því við, svona í framhjáhlaupi, að það væri ekki aðeins ánægja með forsetann sem hefur dvínað…

Einungis 13% landsmanna bera mikið traust til Alþingis

11% treysta Seðlabankanum vel - og 5% Fjármálaráðuneytinu

Og rúsínan í pylsuendanum, 4% landsmanna bera mikið traust til bankakerfisins. Það er met. Alvuru met.

En alvuru fréttinn, það eru óvinsældir Ólafs Ragnars. Einmitt.

Góð þingsályktunartillaga

February 27th, 2009

Það er alltaf gaman þegar maður fær tækifæri til að hrósa þingmönnum annarra flokka, ekki síst á þessum síðustu og verstu tímum.

Ég ætla að hrósa þessari þingsályktunartillögu og vona að hún verði samþykkt. Það er náttúruleg gersamleg útí Hróa hött að það þurfi að rúnta með allt áfengi sem framleitt er fyrir norðan (og austan og víðar) til Reykjavíkur og svo aftur til baka! Eigum við eitthvað að pæla í umhverfiskostnaðinum, slitinu á þjóðvegunum og flutningskostnaðinum fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni, sem er bara hrein og klár mismunun.

Lögum þetta rugl og allir græða!

Tengsl Guðlaugs Þórs við ráðgjafafyrirtækin

February 24th, 2009

Guðlaugur Þór Þórðarson telur að Ögmundur Jónasson sé að reyna að koma höggi á sig með því að upplýsa þjóðina um hvernig Guðlaugur Þór ráðstafaði 24 milljónum af fjármunum í heilbrigðisráðuneytinu  í aðkeypta ráðgjafaþjónustu. 

Ef að ekkert er óeðlilegt við þessar fjárfestingar Guðlaugs á fjármunum skattgreiðenda, af hverju ætti hann að taka því sem svo að Ögmundur sé að reyna að koma á hann höggi? Er ekki eðlilegt að upplýsa skattgreiðendur um það í hvað er gert við skattpeningana þeirra? 

Og hverjir eiga ráðgjafafyrirtækin sem hér er um að ræða. Í hvaða stjórnum viðkomandi sátu og með hvaða fyrrverandi heilbrigðisráðherra til dæmis - ekki að það sé neitt óeðlilegt við það!

Hverju getum við komist að með smá gúgli…?

 

Reykjavík Economics (Magnús Árni Skúlason)
13. júní – 5. okt. 2008
Ýmis sérfræðistörf fyrir ráðherra.
Kr. 924.138. 

Magnús Árni sat í stjórn SUS með Guðlaugi Þór

 

 Rannsóknir og Greining ehf (Inga Dóra Sigfúsdóttir)
Maí 2008 – nóvember 2008:
Vinna við mótun, gerð og kynningu á heilsustefnu auk vinnu við gerð frumvarps um Lýðheilsustöð og mótun hugmynda að framtíðarskipulagi málefna Lýðheilsustöðvar,  Landlæknis og fleira.
Kr. 1.494.000

Inga Dóra sat í stjórn SUS með Guðlaugi Þór

 

DP Lögmenn/DP Fasteignir (Dögg Pálsdóttir)
5. okt. - 22. maí 2008
Vinna við frumvarp um sjúkraskrár og frumvarp um heilbrigðisstarfsmenn.
Kr. 1.322.344

Dögg Pálsdóttir er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins

 

2.  Hið íslenska ráðgjafahús (Kristján Vigfússon)
Sept. 2007 – okt. 2008
Ráðgjafavinna vegna lyfjamála.
Kr. 2.540.424

Kristján Vigfússon er ráðgjafi Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins

 

Argyron ehf (Ragnar Þórir Guðgeirsson)
20. ágúst 2008 – 31. jan. 2009
Úttekt á Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, ráðgjöf vegna breytinga á skipulagi heilbrigðisstofnana, aðild að nefnd um málefni Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Kr. 10.672.762

Ragnar Þórir tók við formennsku í stjórn Fjölnis þegar að Guðlaugur Þór hætti. Stuttu seinna (undir stjórn Ragnars Þóris) var Guðlaugur Þór gerður að heiðursformanni Fjölnis. 

 

 Franca ehf (Eggert Skúlason)
Des. 2007 – nóv. 2008
PR vinna fyrir ráðherra/ráðuneyti/fjölmiðlaþjálfun forstöðumanna
Kr. 2.528.816

Samkvæmt gúgli er þessi herramaður PR-maður Íslands. Því er ekkert skrítið að Orðið á götunni (færsla nú glötuð) hafi greint frá því að Guðlaugur Þór hafi ráðið hann í prófkjörsbaráttunni fyrir síðustu kosningar.

 

(Upplýsingar fengnar frá Eyjunni og google).

Allir í formenn ungliðahreyfinganna í framboði… nema ég…

February 23rd, 2009

Jæja, þá er það orðið ljóst. Allir formenn ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna (sem að eiga nú sæti á þingi) hafa tilkynnt framboð á lista sinna flokka. Það er að segja allir nema ég…

Þórlindur Kjartansson, formaður Sambands Ungra Sjálfstæðismanna, gefur kost á sér í fjórða sæti í Reykjavík fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þess má geta að í síðustu kosningum fengu Sjálfstæðismenn samtals 9 menn í Reykjarvíkurkjördæmunum tveimur. Þórlindur er 32ja ára, en skemmtilegt er að segja frá því að það þýðir að ef hann væri í VG teldist hann ekki ungliði. Ung vinstri græn eru nefnilega með öðruvísi aldurstakmörk en hinar ungliðahreyfingarnar, aðild að UVG eiga félagar í Vinstri grænum sem eru 30 ára og yngri, en í hinum ungliðahreyfingunum er miðað við 35 ára aldur. 

Bryndís Gunnlaugsdóttir er formaður Ungra framsóknarmanna, síðan í haust ef ég man rétt. Hún er Grindvíkingur og stefnir á annað sætið í sínu kjördæmi, Suðurkjördæmi. 

Af öllum formönnunum er svo kannski (með góðum vilja) hægt að segja að Viðar Helgi Guðjohnsen setji markið hæst, en þessi þjóðrækni heimastjórnarsinni sem stýrir LUF, Landssambandi ungra frjálslyndra, vill leiða annan lista flokksins í Reykjavík. Það er þó ekki sama hvoru Reykjavíkurkjördæminu, Reykjavík Suður skal það vera. 

Að lokum er það hin 25 ára Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, sem að hefur framboðsyfirlýsingu sína á orðunum: “Nú þarf Ísland frábært fólk á þing. Ég, Anna Pála Sverrisdóttir, meistaranemi í lögfræði, sækist eftir 5. sætinu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík”

Ég óska formönnunum góðrar prófkjörsbaráttu og vona að allir flokkar beri gæfu til þess að velja gott fólk á öllum aldri á lista sína. Og þá er mikilvægt að ungliðar séu ekki bara listaskraut heldur í líka í forystu.

Sjálf hef ég það alveg öldungis fínt í grasrótinni, enda er markmið mitt í pólitík ekki fyrst og fremst að komast á þing heldur hafa áhrif. Ég er svo heppin að vera í flokki þar sem að það er grasrótin sem að mótar stefnuna, og ef menn eru ósammála um mál er tekist á um þau í stað þess að þegja og beygja sig undir flokksagann. Þannig hef ég heilmikil áhrif án þess að vera á þingi eða í þingframboði og get einbeitt mér að því að stjórna skemmtilegustu ungliðahreyfingu landsins.

Að lokum má benda á þá skemmtilegu staðreynd að þó að formaður Ungra vinstri grænna sé ekki í framboði, þá stefnir fyrrum formaður UVG á 2-3ja sæti í forvali VG í Reykjavík. Það er þá alla vega hægt að kjósa flottan fyrrverandi formann UVG í forvali Vinstri grænna, þó að núverandi formaður gefi ekki kost á sér.

Bæ bæ Varnarmálastofnun?

February 23rd, 2009

Aldrei þessu vant náði forsíðufrétt Fréttablaðsins að koma mér í gott skap. Össur Skarphéðinsson ku vera að velta fyrir sér að spara Íslendingum hátt í 1500 milljónir á ári með því að leggja niður Varnarmálastofnun. Og meira að segja Björn Bjarnason talar Varnarmálastofnun niður, segir hana leifar liðins tíma og flækjufót í öryggissamskiptum Íslands við aðrar þjóðir. Öðru vísi áður mér brá. Össur lét reyndar ekki svo lítið að láta sjá sig í þingsal þegar að lög um Varnarmálastofnun voru samþykkt. Þar var hins vegar Björn, sem kaus með stofnun þessarar peningahítar. Þau einu sem vildu stöðva stofnun þessarar tilgangslausu peningasugu voru Vinstri-græn - eins og sést á atkvæðagreiðslunni

En batnandi mönnum er best að lifa og vonandi verður Varnarmálastofnun lögð niður. Hressust yrði ég ef að allur þessi andstyggðar lagabálkur sem var samþykktur síðasta vor - varnarmálalög - yrði endurskoðaður þannig að allri hervæðingu væri hent úr íslenskum lögum og Ísland segði sig úr Atlantshafsbandalaginu. 

Fyrir þau sem velta fyrir sér hví það sé svona skynsamlegt, bendi ég á ítarlega umfjöllun Ungra vinstri grænna um málið.

Kristján Ketill og Auður Lilja í forvali VG

February 19th, 2009

Það er forvalsstemning á Eggertsgötunni, eða verður alla vega þegar Kristján Ketill kemur heim úr hestatamningu á Austurlandi. Og hann verður nú að fara að drífa í því, búinn að tilkynna framboð og allt!

Ef fólk þarf svo aðra ástæðu til að ganga í flokkinn og kjósa Kristján Ketil  í forvali VG í Reykjavík 5-7. mars næstkomandi, þá bendi ég á að forvalið hefur ýmsa aðra kosti í för með sér. Þar er t.d. hægt að kjósa eina bestu, gáfuðustu, duglegustu og sanngjörnustu konu sem ég þekki, Auði Lilju Erlingsdóttur, í annað til þriðja sætið. Það er eiginlega möst.

Um hvalveiðar

February 6th, 2009

Ég verð að segja að mér finnst ályktun formannafundar Starfsgreinasambandsins með því gáfulegra sem að hefur komið vegna hvalveiðimálsins:

 

,,Formannafundur Starfsgreinasambands Íslands, haldinn 5. febrúar 2009, leggur áherslu á sjálfbæra nýtingu auðlinda í þágu atvinnulífsins og verðmætasköpunar fyrir þjóðarbúið. Ábyrgar veiðar byggja á vísindalegu mati, markvissu eftirliti, hagkvæmni og umhverfissjónarmiðum. Í þessu sambandi eru hvalveiðar einnig mikilvægar, en gæta verður þess að þær veiðar séu stundaðar í sátt og í samráði við ferðaþjónustugreinar og hvalaskoðunarfyrirtæki. Ferðaþjónustan er afar þýðingarmikil og vaxandi frumatvinnugrein á Íslandi, sem á í samkeppni við erlendan markað og þarf á jákvæðri ímynd að halda. Fundurinn telur að vel megi samræma sjónarmið beggja greinanna, þannig að sem flestir geti vel við unað.

Engin umræða hefur átt sér stað í samfélaginu um það hverjir fái að veiða hval, hvenær, hvar og hvernig. Fundurinn fordæmir þess vegna  illa ígrunduð vinnubrögð fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, Einars K. Guðfinnssonar, að úthluta völdum einstaklingum hvalveiðileyfum til fimm ára með útgáfu reglugerðar á síðasta starfsdegi sínum.  Slíkt er óhæfa.”

Sjá einnig frétt Smugunnar.

 

Mér finnst nefnilega í góðu lagi að veiða hval og éta hann, það er ekkert verra en að slátra lambi og gæða sér á því. Ég hef hins vegar ekki neina brjálaða þörf fyrir að að veiða hval ef það kemur þjóðarhagsmunum illa, sérstaklega ekki til að láta kjötið daga uppí frystikistu heima hjá Kristjáni Loftssyni. Ef það á að veiða hval verður að gera það í sátt við ferðaþjónustuna sem að er ein stærsta atvinnugrein landsins, það verður að vera alveg 100% öruggt að það sé markaður fyrir kjötið og þá þarf líka að gefa fleirum en sponsorum Einars Kr. Guðfinnssonar leyfi til  að veiða. Það verður að stöðva þessa helvítis einkavinavæðingu sem alls staðar hefur grasserað á kostnað faglegrar stjórnsýslu í valdatíð Sjálfstæðisflokksins.

Kommúnistarnir koma!

February 4th, 2009

Ríkissjónvarpinu tókst að toppa fréttaflutning sinn með eftirminnilegum hætti í kvöld.  Í byrjun útsendingar RÚV á stefnuræðu forsætisráðherra og umræðu um hana var spiluð smekkleg hryllingsmyndatónlist í anda “Drakúla er að koma til að sjúga úr þér blóðið”-stemningarinnar, á meðan myndir rúlluðu af Jóhönnu Sigurðardóttur að taka við lyklum að forsætisráðuneytinu.

Svo birtist einhver rauður bakgrunnur og mynd af fundarstjórnarhamri. Vantaði bara fundarstjórnarsigðina.  Og textann, en ég sá hann alveg fyrir mér: “VARÚÐ, KOMMÚNISTARNIR KOMA! Allir í bátana! Útrásarvíkingar, spilltir ríkisstarfsmenn með ofurlaun og persneskir kettir fyrst, konur og börn svo!”

Kata Rokk þarf greinilega að taka til víðar en í stjórn LÍN.

Köllum hlutina sínum réttu nöfnum

January 7th, 2009

Í dag býður samheitaorðabók fréttamanna Morgunblaðsins uppá umfjöllun um breytingar á heilbrigðisþjónustu Íslendinga þar sem jákvæða orðið “hagræðing” er notað í staðinn fyrir neikvæða orðið “niðurskurður”.

Jájá, kúkur eða skítur, við erum bara að tala um 1300 milljónir króna. Alveg hægt að hagræða þeim, þetta er náttúrulega bara fundið fé sem hefur legið á glámbekk í heilbrigðisráðuneytinu þar sem allir svömluðu um í peningum fyrir.

Þetta á ekkert skylt við niðurskurð, er það nokkuð?

Og við skulum ekki láta okkur detta í hug að þessu fylgi þjónustuskerðing, onei…

Ályktun UVG: Alþjóðlegt viðskiptabann á Ísrael

December 30th, 2008

Ung vinstri græn álykta:
Aðgerðir Ísraelshers kalla á alþjóðlegt viðskiptabann

Ung vinstri græn fordæma grimmdarverk Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni og taka undir kröfu félagsins Íslands-Palestínu um að öllum stjórnmálasamskiptum Íslands við Ísraelsríkis verði hætt þar til það lætur af grimmdarverkum sínum.

Ung vinstri græn telja að aðgerðir Ísraelsstjórnar kalli á alþjóðlegt viðskiptabann líkt og komið var á gagnvart Suður-Afríku þegar aðskilnaðarstefnan var þar við líði. Stefna Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni er enda ekkert annað en aðskilnaðarstefna, og raunar mun harkalegri og ofbeldisfyllri en sú sem rekin var í Suður-Afríku. Með alþjóðlegu viðskiptabanni yrði með friðsamlegum hætti settur þrýstingur á Ísraelsríki um að virða mannréttindi palestínsku þjóðarinnar. Ung vinstri græn hvetja íslensku ríkisstjórnina til að beita sér fyrir slíku viðskiptabanni.

———————————————————————————-

Og við þetta má svo bæta að ég hvet alla til að mæta á útifund á Lækjartorgi kl. 16:00 í dag til að sýna samstöðu með fórnarlömbum blóðsúthellinganna á Gaza og andúð á mannréttindabrotum Ísraelshers.