Öskrum áfram því auðvaldið andar enn

February 3rd, 2009

Ég hef ekki tíma fyrir blogg þessa dagana. 

Svo ég vísa öllum  þeim sem álpast hingað inn

að fara frekar  þangað til að finna róttæknina!

Öskra, hreyfing byltingasinnaðra stúdenta, á hug minn allan!

*ÖSKRA!*

Því auðvaldið dregur enn andann…

Þórhildur Uncategorized

Breytingar…

January 30th, 2009

Ég lít aðeins í hina áttina, 

- í átt að byltingunni 

þar sem ríkisstjórnir falla 

og nýjir tímir ganga í garð.

Á  meðan breytist allt fyrir aftan mig.

 

Kannski merki um að ég þarf að sinna blogginu mínu kannski aðeins meira….

Þórhildur Vangaveltur

Erfiðleikar við að skipta um buxur…

January 21st, 2009

Ha?

Geir!
Ingibjörg!
Viljið þið þá gjöra svo vel og drullast til að skipta um buxur!
Það er fnykur af ykkur.

*Velkomin í byltinguna*

Þórhildur Uncategorized

Og þá var öskrað!

January 16th, 2009

Ég er ekki fallin frá,
hef bara haft annað að gera við líf mitt en að blogga…
get engu lofað um framhaldið í augnablikinu.

Nú fer vonandi loksins eitthvað að gerast í þessum skóla!
Sjá hér
og hér
og hér.

*be on your guards*

Þórhildur Uncategorized

Samyrkjubúið tekur að sér heimalning

December 10th, 2008

Í fjarveru Þórunnar, sambýliskonu minnar
- sem verður í því að skelfa Ameríkuna með vinkonum sínum um óákveðinn tíma
hef ég af góðmennsku minni
og fyrir félagsskapinn
tekið heimalning inn á samyrkjubúið.
Get ekki sagt annað en að þessi ráðahagur sé velheppnaður í alla staði
og komi öllum aðilum ákaflega vel.

Þórhildur Uncategorized

Gasgríma

December 5th, 2008

Á einhver svona alvöru oldschool gasgrímu?
Mig langar í svoleiðis,
ekki spyrja afhverju
…er í alvöru ekki að spá í að nota hana við lögreglustöðvarinnbrot
-í alvöru

Þórhildur Uncategorized

Veruleikafirring eða eitthvað verra…?

December 4th, 2008

Talandi um veruleikafirringu

Mæli endilega með að lesa viðtalið líka
stutt og danskt,
þetta er æðislegt!
*go davíð, þú ert sko alveg það*

Þórhildur Uncategorized

Að hafa útgeislun í kuldanum…

December 2nd, 2008

Sit uppi með 5000 kall sem ég fékk óvænt í hendurnar fyrir útgeislun mína í kuldalegum mótmælum gærdagsins.
Hugmyndir um góðan málstað til að setja peninginn í eru mjög vel þegnar…

Þórhildur Uncategorized

Setuverkfall dagsins

November 25th, 2008

Ekkert smá sem maður hefur afrekað í dag,
poppaði upp á mismunandi máta í öðrum hverjum fjölmiðli landsins.
Dagurinn byrjaði á því að grein eftir mig birtist í Fréttablaðinu
- hana er líka hægt að nálgast hér,
stutt setuverkfall heimspekinema hafði snögg og kröftug áhrif,
og var barasta orðin uppgefin upp úr hádegi.

Allt um setuverkfall heimspekinema upp í Soffíubúð
- forsögu og hvernig því lauk
má lesa um:
hér
hér
og hér

Málinu er þó hvergi nærri lokið og Soffíubúð er ekki enn óhullt fyrir krumlum stjórnsýslu hugvísindasviðs…

Þórhildur Uncategorized

Piparúði og vínyll…

November 23rd, 2008

Horfði uppá góða vinkonu mína engjast af kvölum með piparúða í augunum í gær…
Enginn viðvörun
bara sprautað út um allt.
Glæsilegt!
Flott!
Vonandi er Björn stoltur af ykkur
því það eru fáir aðrir það…

*ein bestu vínylplötukaup í Kolaportinu ever*

Þórhildur Uncategorized