Archive

Archive for November, 2006

Um hugmyndaflóru Drífu Hjartardóttur

November 28th, 2006

Maður á ekki til orð yfir því þegar þingmenn eru farnir að segja það í blöðum að það sé ekki hægt að horfa fram í framtíðina þegar ákvarðanir eru teknar. Mér finnt þetta vera ein verstu rökin sem ég hef heyrt til réttlætingar stuðningsyfirlýsingu þeirra Dabba dúsk og Dóra eiturhressa við innrásinni í Írak.
Til hamingju Drífa! Þú átt skilið hrós fyrir þína miklu hugmyndaflóru. Líka að detta það í hug, að þessa ákvörðun um stuðning við fjöldamorð hefði eftilvill mátt taka á lýðræðislegri máta, en bara kannski. Hugsanlega ræða hana líka.

Við höfum öll verið gerð að stuðningsmönnum óréttlætanlegra fjöldamorða!
Leiðréttinga er þörf og það helst í gær, ég er enginn morðingi.

Uncategorized

Stríðsmyndir

November 27th, 2006

Í gær horfði ég á Platoon með Ástu frænku minni.

Þrátt fyrir að vera vel leikinn og vel gerð mynd þá fannst mér svolítið erfitt að horfa á hana. Stríðsmyndir eru ekki “my thing”.
Þó að þetta sé bara leikið þá styrkir það mig í hvert sinn í þeirri sannfæringu minni að vera Hernaðarandstæðingur.

Peace out…

Uncategorized

Hvar er Þórhildur…?

November 20th, 2006

Humm, hvar er Þórhildur…
Nei, bíddu við… hér er ég!

Nú megið þið finna mig líka.

Uncategorized

Kúbein óskast!

November 17th, 2006

Kúbein óskast, helst rautt.
Til að auðvelda mér það verk að rífa upp gangstéttarhellur.

Ég er að hugsa um að fara að byrgja mig upp.
Óeirða er þörf.

Uncategorized

Í gær…

November 14th, 2006

Í gær var 13 nóvember. Í gær átti ég afmæli. Í gær varð ég tvítug. Í gær gleymdu sumir því (ég hata þá aðila ekki neitt né ber ég neina kala til þeirra. Ég gleymi líka afmælisdögum). Í gær vissu margir það ekki. Í gær óskuðu líka margir mér til hamingju með daginn. Í gær var kalt og vont veður. Í gær var upptekinn mánudagur. Í gær fór ég í ríkið. Í gær var ég ekki spurð um skilríki, hvorki í ríkinu né þegar ég keypti einn bjór með súpunni í brauðinu sem ég snæddi með Ástu. Í gær fékk ég eina afmælisgjöf, bland í poka og kerti frá Eddu. Í gær voru hápunktar lífs míns þessi afmælisgjöf, skúffukakan sem Steinunn kom með á UVG fundinn og einfaldi málsverðurinn með Ástu.

Einhverja hluta vegna fannst mér það ekkert spes að eiga afmæli. Kannski eru það gráu hárin, eða mánudagskuldinn sem nístir inn að beini.
Að vísu fékk ég góðar húfur frá móðir minni á sunnudaginn þannig að ég get klætt einhvern kulda af mér og falið gráu hárin.

Uncategorized

Djöfull er Ísland yndislegt

November 12th, 2006

Já börnin góð, það sem maður hélt að væri ómögulegt hefur snúist upp í andstæðu sína. Árni fokking Johnsen er á leiðinni aftur á þing.
Úff, mig sundlar illilega við þessa afkáralegu tilhugsun!

Uncategorized

“Við erum að berjast fyrir sannleikann og Pólland”

November 10th, 2006

EInhverja hluta vegna greip þessi setning mig í fyrirlestri um daginn. Þetta tengist ekki pólskum verkamönnum hér á landi heldur seinni heimstyrjöldinni.

Áfanginn heitir hinu háfleyga nafni; Heimspekileg forspjallsvísindi, en er kallaður hinu plebbalega uppnefni; Fílan.
Efni fyrirlestrarins var áhugavert, sannleikurinn. Mikið vitnað í Orwell og bókina hans 1984 sem ég held mjög mikið upp á. Fyrirlesarinn var aftur á móti ekki nógu frambærilegur og ég sofnaði í 15 síðustu mínúturnar. í fyrsta sinn á minni ævi sem ég sef í tíma eða fyrirlestri.

Ég vil berjast fyrir sannleikanum…. sjáum til með Pólland.

Uncategorized

Nýtt en aðgerðarlaust blogg… í augnablikinu

November 6th, 2006

Já nýtt blogg.
Og ekkert enn að gerast á því….
ég kann ekki rassgat á þetta bloggkerfi!!

Bið fólk um að sýna mér smá skilning og biðlund þangað til að ég átta mig á einhverju.

Uncategorized