Þegar litli smáborgarapúkinn komst í fyrsta skipti í Ikea
Í gær fór ég í fyrsta skipti í nýja Ikea sem er staðsett einhvers staðar út í hrauni. Þessi ferð hafði átt sér nokkuð góðan aðdraganda og miklar umræður á milli okkar systkynjanna, enda mikil þörf til að kaupa fáeina hluti inn á heimilið áður en Sverrir stingi af til Sverige. Sem hann gerði núna í morgun.
Það má segja að litli smáborgarapúkinn sem dvelur innra með mér (og ég reyni að alefli að bæla og þagga niður í) hafi verið farinn að hoppa og skoppa og nánast skríkja af æsingi við tilhugsunina eftir sem nær dróg ferðalagið. Ójá, það er sko ferðalag að koma sér upp í nýju Ikeabúðina.
Það var svo í hádeginu í gær sem ég og Sverrir klifruðum upp í gamla “rednex” hiluxinn sem krefst mikillar vinnu að keyra, og hættum okkur út í þarna… ööö, tja, sko þarna í Kópavog, Garðabæ eða Hafnarfjörð? Alla vega hef ég ekki hugmynd um hvar ég á að staðsetja þetta Ikeaskrípli. Það er bara þarna úti hrauni.
Ökuferðin tók góðan tíma, enda finnur maður ívið meira fyrir mótvindi á þessum gæðabíl en á öðrum. Ikearöltið tók nokkuð fljótt af, enda ekki mikið af fjármunum ætlað til að spreða. Það sem nauðsynlega þurfti var keypt: Kommóða undir græjurnar, spegill (oki þurfti kannski ekki nauðsynlega en ég er orðin þreytt á að þurfa að standa upp á eldhúskolli fyrir framan klósettspegilinn til að sjá allt dressið þegar stefnt er út á lífið), 4 hvítvínsglös og sigti.
Versta brotlendingin við velheppnuð innkaup var að uppgötva þegar byrjað var að setja kommóðuna saman að eitt stykkið var brotið í pakkanum. Svo við urðum að gjöra svo vel að mæta aftur upp í hraunið til að fá nýtt. Var það bragðið sem var notað til að búa til “300 þúsund manns hafa farið í Ikea” töluna þegar þessi nýja búð var opnuð fyrr í vetur?
Maður spyr sig. Ég mætti að minnsta kosti ekki til að fylla upp í þá tölu sem nær upp í fjölda allra landsmanna og ég veit að Sverrir gerði það ekki heldur.
Þetta er bara byrjunin; bráðum verður smáborgarinn í þér kominn með myspacesíðu…
Vó…. nú er ég hrædd :S
Þetta er bara byrjunin, bráðum verður smáborgarinn í þér kominn með myspacesíðu og allt…