Home > Uncategorized > Blóm í rommflösku

Blóm í rommflösku

April 19th, 2007

Áðan var mér fært stórt og gult blóm. Tilefnið var sumardagurinn fyrsti og sólin. Gefandi var Kristrún. Fannst mér þetta yfirmáta huggulegt og fallega hugsað af stúlkunni.
En við komu þessa blóms komst upp um brotalöm í heimilishaldinu á Baldursgötunni. Hér er enginn blómavasi. Auðvitað lét ég það ekki stoppa innrás gula blómsins heldur náði í stóra Havana Club flösku ofan af eldhússkápnum (sem geymir tómu flöskurnar). Skolaði, skellti í hana vatni og einhverju dufti sem fylgdi með, tróð blóminu ofan í og plantaði inn á stofuborð
Okkur Kristrúnu fannst þetta bara nokkuð huggulegt. Spurning hvað Ástu finnst…

DSC00331.JPG

DSC00332.JPG

DSC00329.JPG

Þetta var mjög dæmigerð saga af heimilishaldinu á Baldursgötunni.

En þessi mynd af Kára og Ella lýsir örugglega best hversu góð stemming var á RORUVG-tónleikunum í gær. Pínu óskýr, enda bara tekin á símann minn.
DSC00319.JPG

Þórhildur Uncategorized

  1. ástan….. do i need to say more?
    April 19th, 2007 at 22:01 | #1

    Þessi uppfinning er bara stór fín! Ég hefði ekki geta gert betur!

  2. April 19th, 2007 at 23:45 | #2

    Romm í blómflösku.

  3. Erlendur
    April 20th, 2007 at 06:50 | #3

    Þá veit maður hvað maður getur gefið þér, annað hvort blómílát eða fjölhæfa rommflösku :P

  4. Kristrún litla sólskin
    April 20th, 2007 at 23:39 | #4

    Mín var ánægjan mín kæra, mín var ánægjan. Verð að segja að það hefði nú bara ekki verið í þínum anda að nota hversdagslegan blómavasa, rokkar ekki nóg sko;) já og tónleikarnir voru úbbagóðir. Barmmerkin voru samt best!

  5. April 24th, 2007 at 19:39 | #5

    Jess Ásta, vissi að þú mundir fíla þetta :)
    Fallega hugsað Erlendur en hver þarf blómavasa þegar hann drekkur romm?

    Takk aftur, Kristrún mín. Þetta var virkilega fallega hugsað. Frábært að þú hafir komið á tónleikana. Og Hlynur líka, you guys make me proud! :)

Comments are closed.