Ég get bara ekki sleppt því að nefna það. En lagið Kysstu tímaglasið sem er á nýútkominni hljómskífu partýbandsins Hraun, I Can’t Believe It’s Not Happiness, kemst tvímælalaust á minn einkalista af tregafullum og fallegum lögum.
Þar má finna lög eins og Mad World með Gary Jules, Twilight með Elliott Smith (sem samsamar sig skuggalega mikið fáeinum mánuðum í lífi mínu), Famous Blue Raincoat með Leonard Cohen, John Wayne Gacy, Jr. með Sufjan Stevens. Nánast allur Electro-Shock Blues diskurinn með Eels og diskurinn No More Shall We Part með Nick Cave…
og margt annað sem passa vel við þær stundir sem eru erfiðar á einn eða annan hátt.
En nóg af væmninni. Ég hlusta á margt annað sem er alveg laust við hana.
Mér finnst að það ætti að banna það með lögum að nota sláttuvélar og sláttuorfa fyrir hádegi, alla daga vikunnar! Helst viðloðandi sektum eða þaðan að verra ef brotið væri á þeim lögum.
Ég hata það að vera vakin upp við þessar óþolandi óhljóðamaskínur þegar ég er að reyna að sofa almennilega milli vakta í húsi foreldra minna upp á Skaga! Ég þarf minn svefn til að meika óþverrann næstu 12 tímanna.
Tel vinnuskólann vera helsta sökudólginn í þessu máli.
Mér fannst vinnuskólinn vera djöfulsins drasl á sínum tíma,
mér finnst enn.
Uncategorized
Mig langaði svolítið til að selja upp þegar ég sá sjónvarpsauglýsingu fyrir þennan margumtalaða Kolvið. Og nú þarf ég að horfa upp á brosandi smettin sem fylgja honum á öðru hverju strætóskýli. Fagnandi því að hafa fengið lausn synda sinna. Talandi um aflátsbréf!
“Gjörðu svo vel, fyrir nokkra þúsund kalla verður holað niður nokkrum hríslum svo að þú getir haldið áfram að menga að vild! No worries”
Talandi um að fyrra sig ábyrgð! Talandi um blekkingu! Talandi um að hunsa alvarleika málsins hvað varðar mengun og afleiðingar hennar.
Talandi um helvítis aflátsbréfasölu í anda kaþólsku-kirkjunnar. Ef þú átt peninginn, þá færðu þér bara ábót á mengun með nokkrum trjám þegar fyrsti skammturinn er uppurinn.
Mig langar líka svolítið til að selja upp á nýju ríkisstjórnina. Ég óttast að margt muni renna vitlaust til sjávar á þeim bæ næstu 4 árin.
Ég gef lítið fyrir nýja og þurrkuntulega stjórnarsáttmálann *geisp*
Vil ég þá helst nefna það hugarvíl þeirra að “harma” stríðið í Írak. Ertu ekki að fokking grínast í mér!?!?!
Verð að viðurkenna að ég hálfpartinn bjóst ekki við neinu öðru af Samfylkingunni en aumingjaskap í samskiptum sínum við Sjálfstæðisvarginn.
Krötum er ekki treystandi.
Steinunn segir margt í þessari færslu um málið.
En að vissu leyti get ég verið sátt við hjónasæng krata og sjalla í stjórnarráðinu.
Það gefur mér loksins almennilegt veiðileyfi á kratana. Hef haldið mér á mottunni í kringum kosningarnar og í kjánalegri von um að ef til vill væri meira vit í þeim en ég hélt.
Gott að hafa fengið þann misskilning leiðréttan. “Takk kratar”
Uncategorized
Rak sjálfan mig út að andnauðast á hlaupum í kringum mávafyllta tjörnina (hvar er Gísli Marteinn?) þegar ég vaknaði í morgun.
Að vísu vaknaði ég ekki fyrr en einhvern tímann upp úr kl 10. Eftir að hafa setið við rauðvíns og cuba-libre drykkju til kl 04 um nóttina.
Hlaupastússið gekk bara ótrúlega vel, þrátt fyrir þessa hálfu rauðvínsflösku, dass af rommi og klúðurslegu pasta sem ég reyndi að kokka um nóttina. Kannski ráð að taka upp fyrri siði, þ.e.a.s. útihlaupin.
Vaktavinna færir þér ekki heilbrigt líferni. Allir dagar verða eins. Vikudagar sem og hátíðisdagar verða afstætt fyrirbæri og tilgangslaust að velta þeim og hlutverki þeirra fyrir sér. Miðvikudagur hentar alveg jafn vel og laugardagur þegar maður er í vaktafríi.
Við Ásta skemmtun okkur við að horfa og hlusta á þetta um fjögurleytið í nótt
Og að lokum, grein eftir mig á Kommúnuvefnum.
*Góða nótt*
Uncategorized
VÁ!!
Finnar eru kúl, alla vega þeir Finnar sem ég hef kynnst.
Já, það heyrist hvorki né sést til mín í viku og svo dúkka ég allt í einu upp með þá draumóra að Finnland sé fyrirheitna landið. Oki, kannski ekki alveg fyrirheitna landið, en fjandi töff samt!
Síðasta miðvikudagsmorgun stungum ég og Auður af til erlendra landa til steyta hnefann með norðlenskum róttæklingafélögum okkar. Förinni var fyrst heitið til Svíþjóðar á SUN-fund, a.k.a. Socialiske Ungdom i Norden. Þaðan var síðan farið með víðfrægum partýbát til Finnlands en Sverrir slóst í för með okkur þangað. Í Finnlandi vorum við gestir á landsfundi félags vinstrisinnaðra ungliða í Finnlandi, Vasemmistonuoret. En þar voru menn upp til hópa fáránlega töff, ótrúlega almennilegir og alltaf til í að spjalla við umkomulausa útlendinga sem skilja ekki bofs í tungumálinu.
Veðrið var dýrlegt, bjórinn góður, ferðafélagarnir frábærir, félagar Vasemmistonuoret töff og umhverfið blés miklum baráttu-og sameiningaranda okkur í RORUVG í brjóst.
Eldimóðurinn var slíkur að ég og Sverrir vorum farin að syngja íslenska baráttusöngva undir lokin, en við systkynin höfum aldrei verið mikið fyrir að syngja. Við þrímenningarnir erum alla vega orðin mun vígreifari og æstari eftir helgina. Metnaðarfullar hugmyndir eru á kreiki.
Alþjóðlegt samstarf við vinstrisinnaða og róttæka félaga okkar skiptir öllu máli! Sérstaklega á Norðurlöndunum eigum við að standa saman, þar sem nálægðin og líkindin í samfélögunum eru mikil.
Kannski pínu spes að við í RORUVG skulum fíla okkur best og tengjumst mestum böndum við Finnana. Þar sem tungumálin eru svart og hvítt. Hefði ekki búist við því. En það er gaman að vera komið á óvart.
Ég og aðrir vinstrisinnar á Íslandi eigum meiri samleið með ungum og vinstrisinnuðum Finnum og erum í raun meiri “samlandar” þeirra heldur en t.d. SUSaranna hér á landi. Svo þegar SUSarinn skipar þér að skjóta á meðlimi Vasemmistonuoret. Þá áttu að skjóta SUSarann!
Róttæklingar allra landa sameinist!
Svo smá einkabrandara (til að taka það strax fram þá mun ég ekki útskýra þá) að lokum fyrir mína frábæru ferðafélaga, Auði og Sverri (*dýrka ykkur*):
“Yeah, but how about Eurovision?”
“Sko EF, við værum rauðhærð, í leðurbuxum og hétum Eiríkur Hauksson…”
“Moi, kiitos og moi moi”
“Järvenpää!”
Uncategorized
Seint í nótt fékk ég heiftarlegt vélindabakflæði sem olli gríðarlega sárum brjóstsviða við hvern sopa. Ég sagði að freyðivínið yrði ekki jafn gott ef það yrði notað til að drekkja sorgum en ekki til fagnaðar.
…eða kannski var þetta hálfa breezernum sem ég fékk gefins undir morgun að kenna…
Alla vega langaði mig að sparka í punginn á ansi mörgum (sama hvort kynið átti í hlut) á þessum tímapunkti þegar ég sat með nokkrum RORUVG-liðum á Baldursgötunni og fussaði yfir kosningasjónvarpinu.
Stemmingin á hótel Sögu var orðin of súr
Jújú, það er hægt að finna ljósa og jákvæða punkta í þessum kosningum þegar maður leitar með réttu hugarfari.
Ég er bara engan veginn með rétta hugarfarið til þess.
Og núll samstarfsvilja til jákvæðni. Guðfríður Lilja komst ekki einu sinni á þing!
Ég er pissed off og glaseygð
Í ljósi þessara úrslita, þá mun Elli hafa nóg að starfa næstu vikur
Uncategorized
Koma svo allt gott fólk!
Nú hafið þið tækifærið til að breyta til,
nú hafið þið tækifærið til að sýna ríkisstjórnarflokkunum fingurinn þegar þið setjið feitt og gott X við V bakvið tjöldin.
Ég keypti freyðivínsflöskuna til að fagna góðum úrslitum úr kosningunum ekki til að drekkja sorgum og vonbrigðum í nótt. Það bragðast ekki jafn vel fyrir vikið.
So kommon people! Gerið mig stolta!
Uncategorized
Ég er ófrumleg og ætla að herma eftir Ella.
Ég vil benda á góðar færslur hjá sambýlingum mínum hérna á Kommúnunni í staðinn fyrir að vera gáfuleg sjálf. Fyrst vil ég benda á færslu hjá Auði um feministamálefni, finnst þau samt eiga til allra. Áhyggjur Ella sambandi við álrisann Alcoa og kaupæði hans. Síðast en ekki síst vil ég benda á reiði bróður míns í Svíþjóð.
Ég er nefnilega að læra.
Kannski var maður frekar dapurlegur í gær og einum of svartsýn
Synd.
Eftir 1 og 1/2 beinakexi (brotareikningur er ekki mín sterka hlið),
mjólkurglas og
tveimur South Park þáttum seinna,
komst ég að þeirri niðurstöðu að það hefði ekkert upp á sig að langa til að skjóta sig í báðar hnéskeljarnar.
Ein er alveg nóg.
Þarf að eiga hina klára um jólin…
Það er tannkremsbragð af tyggjóinu mínu, hvurslags! Ef ég hefði viljað það þá hefði ég bara fengið mér tannkrem.
Og það er reykskynjari í ísskápnum, don´t ask
Uncategorized
Mætti í frumspekipróf áðan.
Náði að klúðra c.a. 1/3 af því.
Uggvænlegt munstur er farið að láta á sér bera.
Ég klúðraði nefnilega líka c.a. 1/3 af Fornaldarheimspekiprófinu mínu.
Samanlagt er þetta 2/3 af 2/3 af lokaprófunum mínum.
Útlitið er frekar svart fyrir Siðfræðiprófið ef þessi þróun heldur ótrauð áfram.
Útkoman úr þessu dæmi, þegar hlutfall alls klúðursins í heild sinni verður lagt saman, yrði þá 3/3 eða einn heill!
Maður er klárlega ekki alltaf að kom úr út hlutunum í plús þó að maður fái einn heilan. Heila kökuskífu af klúðri!
Próf eru farin að vera vettvangur sem ég missi matarlyst yfir. Sem gerðist aldrei í fjölbraut.
Já þetta er svartsýnisblogg… með yfirþyrmandi kosningar á hælunum
*sight*
Uncategorized
Mér finnst Svavar Knútur töff
Eftir að hafa horft upp á ótrúlegt “trúbadors-performans” hjá honum í gærkvöldi, hef ég komist að þeirri niðurstöðu að hann rokkar feitt!
Hann kom með eitt það sniðugasta sem ég hef heyrt lengi:
“Reiður Jeff Bucley-aðdáandi er svona eins og andarungi í leðurjakka.”
“Ég er svo reiður!”
Vá hvað ég sé þetta fyrir mér… priceless!
Megrunarlausi dagurinn er víst í dag.
Þar sem ég er ung stúlka þá hlýt ég náttúrlega að vera alltaf í megrun nema einn dag á ári.
Úff, þetta er erfitt og bratt líf sem blasir við manni.
Eintómar gulrætur og þurrt hrökkbrauð.
Uncategorized
Hér er geðveikt flotta stríðsádeilu myndin sem Ásta teiknaði fyrir RORUVG og var sett á boli sem hægt er að fá í svörtu og rauðu á 1000 kall

Uncategorized