Þróun aftur á bak
Í morgun varð ég fyrir miklum vonbrigðum þegar ég las frétt í Fréttablaðinu, þess eðlis að unglingar í dag litu frekar á það sem verk stúlkna en drengja að þrífa og þvo heldur en árið 1992.
Ha, bíddu! Fyrirgefið orðbragðið en hver djöfullinn! Hvað er í gangi? Er ungdómur landsins farinn að þróast aftur á bak? Síðan hvenær byrjuðu unglingarnir að vera þeir íhaldssömu í partýinu? Er þetta kannski klámkynslóðin sem hefur sýnt þá takta að kvenkynið sé bara til taks og tilbúið til að þjóna karlkyninu á öllum sviðum? Maður bara spyr sig…
Alla vega finnst mér þetta varhugavert. Sérstaklega í því ljósi að menn eru hver á fætur öðrum að básúna því um allar trissur að jafnrétti hafi verið náð og allt sé í stakasta lagi.
Hvað er gígantíst mikið töff: Að öskra af alefli með öðru RORUVG-liðum nokkur vel valin slagorð í kröfugöngu verkalýðsins. Poni Hoax og lagið Budapest sem Sverrir hefur kennt mér að ofspila. Og flottu stríðsádeilu-bolirnir frá RORUVG sem Ásta teiknaði myndina á.
Hvað er gígantíst ekki töff: Þvottaefnisauglýsingar… t.d. eins og sú sem ég sá áðan um hið ólýsanlega frábæra og óstöðvandi uppþvottavélaefni Finish. Helvíts Tópas! Og spilling ríkisstjórnarflokkana sem þjóðin er sífellt að verða vitni af, en ypptir bara öxlum yfir og heldur áfram að íþyngja sófanum sínum.
Já ég sá líka þessa frétt og varð kjaftstopp. En það sem gerði mig enn meira forviða var sú staðreynd að þegar könnunin var gerð ‘92 var allhátt hlutfall bæði drengja og stúlkna, já líka drengja, sem lét í ljós þá skoðun að karlarnir ættu frekar að sinna heimilisstörfum en konur. Og ÞAÐ finnst mér merkilegt. Hlýt að hafa mislesið súluritið eða fengið sjóntruflanir tímabundið…
jámm! Það er greinilegt að “hið rétta hlutverk konunnar sé á BAK við eldavélina” eins og Guðni Águstsson átti víst að hafa sagt á sínum tíma… þessi orð um afturábaks þróun eru í boði Framsóknarflokksins
p.s.
Og stelpur, munið að þögnin er dyggð konunnar.
Lag dagsins er klárlega lagið -You Say It Best When You Say Nothing At All- með Ronan Keating. (ekki drepa mig…oft)
Jæja Hlynsi minn, á morgun færð þú glóðarauga og brotið nef í boði mín og Tótu…
Helvítis Tópas! (og reyndar Nói Sirísus í heild sinni)
Ég vil ekki vera ataður bensíni, keflaður við bálköst og brenndur þannig að ég held mér saman.
Sæl. Skoða stundum síðuna og oft eru þetta áhugaverðir pistlar hjá þér, en..
“Og spilling ríkisstjórnarflokkana sem þjóðin er sífellt að verða vitni af, en ypptir bara öxlum yfir og heldur áfram að íþyngja sófanum sínum.”
Þetta eru eintóm upphrópunarmerki hjá þér Þórhildur, ég hefði nú búist við meiri rökfærslum hjá ungri pólitískri dömu en þetta. Allt í lagi að vera á móti ríkisstjórninni, stjórnarandstöðu eða jafnvel túnfisksamlokum. En svona ásakanir er venjan að rökstyðja, ávani sem er orðinn helst til algengur hjá stjórnarandstöðufólki sem hefur jafnvel ekkert voðalega mikið til að klaga upp á ríkisstjórnina lengur
kv.ÞR
Nú ertu kominn út á hálann ís Hlynur… við Kristrún tökum þig á teppið eftir prófin
Ég held að ég muni nú ekkert kveikja í þér Skúli, þó að þú komir með eitthvað nasty komment
Stundum er maður bara virkilega “pissed off” og langar ekkert til að vera málefnalegur Þorgeir
Ég er bara orðin pirruð á skeytingarleysi fólksins í landinu
Ég er ekki hræddur við að þú kveikir í mér, ég er hræddur við að femínistar brenni mig fyrir að vera ekki alveg PC að þeirra mati…