Takk kratar, mig langar að selja upp…
Mig langaði svolítið til að selja upp þegar ég sá sjónvarpsauglýsingu fyrir þennan margumtalaða Kolvið. Og nú þarf ég að horfa upp á brosandi smettin sem fylgja honum á öðru hverju strætóskýli. Fagnandi því að hafa fengið lausn synda sinna. Talandi um aflátsbréf!
“Gjörðu svo vel, fyrir nokkra þúsund kalla verður holað niður nokkrum hríslum svo að þú getir haldið áfram að menga að vild! No worries”
Talandi um að fyrra sig ábyrgð! Talandi um blekkingu! Talandi um að hunsa alvarleika málsins hvað varðar mengun og afleiðingar hennar.
Talandi um helvítis aflátsbréfasölu í anda kaþólsku-kirkjunnar. Ef þú átt peninginn, þá færðu þér bara ábót á mengun með nokkrum trjám þegar fyrsti skammturinn er uppurinn.
Mig langar líka svolítið til að selja upp á nýju ríkisstjórnina. Ég óttast að margt muni renna vitlaust til sjávar á þeim bæ næstu 4 árin.
Ég gef lítið fyrir nýja og þurrkuntulega stjórnarsáttmálann *geisp*
Vil ég þá helst nefna það hugarvíl þeirra að “harma” stríðið í Írak. Ertu ekki að fokking grínast í mér!?!?!
Verð að viðurkenna að ég hálfpartinn bjóst ekki við neinu öðru af Samfylkingunni en aumingjaskap í samskiptum sínum við Sjálfstæðisvarginn.
Krötum er ekki treystandi.
Steinunn segir margt í þessari færslu um málið.
En að vissu leyti get ég verið sátt við hjónasæng krata og sjalla í stjórnarráðinu.
Það gefur mér loksins almennilegt veiðileyfi á kratana. Hef haldið mér á mottunni í kringum kosningarnar og í kjánalegri von um að ef til vill væri meira vit í þeim en ég hélt.
Gott að hafa fengið þann misskilning leiðréttan. “Takk kratar”
Þið systkin síðhærðu hafið svipaðan æluhúmor. Man eftir því fyrir nokkrum árum hvernig Sverrir reyndi að selja upp í rassvasa mér með röri.
Já maður ætti kannski að nota tækifærið og ykkur í VG til hamingju með tækifærið til að fá útrás fyrir kratahatrið.
Ég mundi nú ekki segja að ég hataði krata. Gott fólk að finna þar á meðal. EN ég er á allt annarri bylgjulengd, mjög ósammála mörgu og treysti þeim ekki baun í bala
hæ þórhildur, beinskeytt blogg hjá þér..
En þú settir hér link inn á vinkonu þína hér í miðri færslu.. Ég skrollaði aðeins niður í grein hennar og þar gætti það mikinn dónaskap að mér blöskraði. Auðvitað er ég hjartanlega sammála með þetta íraksbull allt saman. ein verstu mistök sem íslendingar hafa gert, eða íslendingar.. Davíð og Halldór (þó aðallega Davíð)auðvitað áttum við aldrei að vera á þessum lista, það er alveg klárt.. og það þarf ekkert að ræða þetta frekar, þar erum við sammála..
En ég ætla að koma með nokkur ummæli sem vöktu atygli mína á síðu vinkonu þinnar.
“Farið til helvítis kratalygaraaumingjar og sjálfstæðissiðleysingjar.”
mjög málefnanlegt og beinskeytt, þó að maður sé andstæðingur einhvers að þá fer maður bara ekki á svona lágt plan.. miklu nær að rakka þau niður með rökum, ekki einhverju svona dóti.. þó maður sé vinstri grænn að þá er ekki allt leyfilegt hehe.
annað:
“Takk kærlega fyrir efndirnar,
fífl.”
blé
set spurningarmerki við þetta hehe hefði ekki mátt sleppa þessu “fífl” dæmi? meina þó maður sé á moti einhverjum pólitískt að þá verður náttúrulega að virða skoðun annara. eða mér finst það og stend fastur á því. Ég mein ég er mjööög oft ósammála VG ,en ég virði þó þeirra skoðanir!!
En að öðruleyti er þessi grein hjá henni um margt ágæt einsog áður segir, og er ég hjartanlega sammála vel flestu þarna og ef það bætir e-ð að þá er ég tilbúinn að biðjast afsökunar á þessu sem flokksbundinn fyrrverandi ríkisstjórnarflokki..
En annars bara bestu kveðjur tóta og það er alltaf gaman að lesa bloggið þitt..
Takk fyrir mig
úpps kom 2 hhe
Smá svar til Bjarka:
Ég hafði bara engan áhuga á að vera málefnaleg í þessu bloggi, og það er ekki skrifað af mér sem uvg-liða, heldur af kjósanda sem blöskrar aumingjaháttur Samfylkingarinnar sem var búin að lofa að taka Ísland af lista hinna viljugu þjóða, en einfaldlega sveik það. Og Sjálfstæðismenn finnst mér siðlausir að láta það ekki skipta sig neinu máli þó þeir styðji stríð sem hefur gert heiminn að ófriðvænnistað og hefur kostað hundruð þúsunda óbreyttra borgara lífið. Það er ekki siðferðislega rétt að mínu mati, og ef þú ætlar að vera á annarri skoðun, þá hef ég engann áhuga á að virða hana, svona þér að segja. Ég hef ekki umburðarlyndi gagnvart öllum skoðunum, og hef ekki áhuga á að hafa umburðarlyndi á öllum skoðunum (þó það fari að sjálfsögðu algerlega eftir því um hvað ræðir).
Og þeir sem efna ekki loforð, sérstaklega svona mikilvæg loforð
eru fífl
og ég áskil mér allan rétt til þess að kalla þau fífl. Það er engin ástæða til að vera ekki reið og láta fólk heyra það þegar það hagar sér svona.
Einfalt mál.
Smá svar til Bjarka:
Ég hafði bara engan áhuga á að vera málefnaleg í þessu einstaka bloggi, og það er ekki skrifað af mér sem uvg-liða, heldur af kjósanda sem blöskrar aumingjaháttur Samfylkingarinnar sem var búin að lofa að taka Ísland af lista hinna viljugu þjóða, en einfaldlega sveik það. Og Sjálfstæðismenn finnst mér siðlausir að láta það ekki skipta sig neinu máli þó þeir styðji stríð sem hefur gert heiminn að ófriðvænnistað og hefur kostað hundruð þúsunda óbreyttra borgara lífið. Það er ekki siðferðislega rétt að mínu mati, og ef þú ætlar að vera á annarri skoðun, þá hef ég engann áhuga á að virða hana, svona þér að segja. Ég hef ekki umburðarlyndi gagnvart öllum skoðunum, og hef ekki áhuga á að hafa umburðarlyndi á öllum skoðunum (þó það fari að sjálfsögðu algerlega eftir því um hvað ræðir).
Og þeir sem efna ekki loforð, sérstaklega svona mikilvæg loforð
eru fífl
og ég áskil mér allan rétt til þess að kalla þau fífl. Það er engin ástæða til að vera ekki reið og láta fólk heyra það þegar það hagar sér svona.
Einfalt mál.
Fólk sem hefur ekki áhuga á að vera málefnalegt á að halda sig sem lengst frá pólitík.
…eins og ég geri.
Það er orðið frekar hart þegar ekki má byrsta sig yfir lygum og svikum.
Er þetta ekki gamla tuggan um að virða rétt annarra til skoðanamyndunar? Það er auðvitað ógjörningur að virða allar skoðanir sem fólk kann að hafa og sérstaklega “skoðun” á borð við þá að aðild að íraksstríðinu sé ekkert til að skammast sín fyrir. Myndi frekar kalla þetta hreinskilni í Steinunni en dónaskap, auk þess sem þetta fólk hefur sjálft sýnt svo rækilega fram á ræfildóm sinn í þessum efnum að það væri borið í bakkafullan læk að ætla að “rökstyðja” það frekar.
Klárlega sammála þér þarna Erla. Sumar skoðanir eru bara svo fáránlegar og óforskammaðar að það er engin ástæða til að virða þær!
Behave boys… Steinunn er RORUVG-gella eins og ég.
Allt í lagi að byrsta sig, það er bara kúl. En ef fólk getur ekki byrst sig án þess að grípa til orðbragðs þá á það sleppa því. Bölv, ragn og fúkyrði eru til þess fallin að rýra málstað og málflutning ræðumanns eða ritara, hvort sem fjallað er um lygar og svik eða eitthvað fjarskylt og frábrugðið slíku. Það tekur enginn mark á fólki sem stendur á garginu (eða er með CAPS LOCK á), sótsvart í framan og segir eða skrifar ekki annað en “andskotanshelvítisfökkindjöfulssjittbitsj”. Réttilega. Íslendingum hættir mjög til að nota blótsyrði orðum sínum til áhersluauka og í daglegu ómálefnalegu tali er það gott og blessað, td. djöfull er bjór góður og helvíti er gott í ‘essu helvítis helvíti. Þetta er partur af málhefð okkar, því miður ef til vill. En þegar komið er út í rökræður, skoðanaskipti og málefnaumræður bíður bölvandinn tóma álitshnekki, hvort sem hann hefur stimplað sig út úr Valhöll/Bændahöllinni/Kreml, lagt frá sér byltingarrifflana og tekið af sér barmerkin eða ekki. Ekki er hægt að ætlast til þess að fólk hugsi “ah, nú skrifar hann/hún sem málmsmiður en ekki sem áhugamanneskja um flúorljós í dreifbýli”.
Og að bera fyrir sig að vissar skoðanir séu bara ekki virðandi dugar skammt. Hverju skyldi eigandi slíkrar skoðunar svara? “Já, ókei ég skil. Ég óð þá bara í villu og svíma! Svei mér þá, beikon er semsé æði” er svar sem við getum verið sammála um að væri hæpið, meira að segja ef skoðun viðkomandi hefði verið að beikon væri eitthvað annað en æði. Jafnhætt væri við hlátrasköllum og handalögmálum. Illt verður ekki með illu út rekið, í svona löguðu frekar en öðru; viðkomandi færi í baklás og styrktist bara í bjánalegri skoðun sinni enda augljóst að úr því að andmælendurnir séu svona ómálefnalegir og orðljótir hljóti þeir að vera eitthvað verri. Að taka til við rökræður og kafa dýpra í skoðun beikonböðulsins er vænlegra til árangurs og sparar hinum réttsýna niðurlæginguna og skaðann sem fylgir áðurnefndum dólgshætti og dónaskap. Í versta falli víkkar sjóndeilarhringur í það minnsta annars aðila, í besta falli sér hinn villuráfandi sauður ljósið.
…og hana nú.
Þetta er nú ljóti útúrsnúningurinn. Beikon? Ertu að grínast?
Þegar ég tala um að virða ekki allar skoðanir þá á ég að sjálfsögðu við skoðanir sem byggðar eru á fáfræði eða fordómum, eins og það að allir gyðingar séu vondir eða svertingjar latir. Skoðanir byggðar á reynslu og smekk eru allt annað, enda er smekkur afstæður eins og allir vita.
Siðferði er allt annar handleggur, og það er það sem við erum að tala um hérna, ekki matvæli.
Mér finnst ekki siðferðislega rétt að styðja stríð sem stuðlar að drápum á saklausum borgurum. Mér finnst það svo kaldlynt og ógeðslegt að mér finnst það jafngilda því að segja að helförin hafi verið ok. Og myndu ekki flestir segja að sá sem reyndi að verja helförina hefði ekki siðferðiskennd í lagi? A.m.k. kvika ég ekki frá því að slíkar skoðanir hef ég ekki, og hef engan áhuga á að hafa, umburðarlyndi fyrir.
Og orðaval mitt, er það ekki einmitt gott dæmi um smekksatriði? Við erum augljóslega með algerlega andstæða skoðun á því máli, ég tel að það megi vel segja fólki til syndanna með því að
a) kalla þá lygara þegar þeir ljúga
b) kalla þá siðleysingja þegar mér finnst þeir siðlausir
c) óska þeim þess sama helvítis og þeir styðja að sé viðhaldið í fjarlægum löndum, því allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri þér… o.sv.frv (þetta var í raun mjög kristilegt af mér þegar allt kemur til alls…)
d) kalla þá fífl þegar mér finnst þeir haga sér eins og fífl.
En þetta er öðrum greinilega ekki réttlætanlegt. Að kalla fólk sem lýgur lygara? Þvílíkur dónaskapur…
Ég hef alltaf litið á bölv sem áhersluauka á tilfinningar, ekki dauðasyndir. Og ég lít ekki á fólk sem blótar í daglegu tali, hvort sem það talar um stjórnmál eða matvæli, eins og það sé eitthvað verra. Ég skil tjáningarmáta þeirra og samþykki nema mér finnist ómaklega að einhverju vegið, og þá er það ekki orðavalið sem ég læt bögga mig, heldur ef farið er rangt með staðreyndir. Auðvitað finnst mér leiðinlegt að orðaval mitt fer fyrir brjóstið á fólki, en ég hélt að viðkvæmir hefðu vit á að lesa ekki bloggin hjá RORUVG-gellum. Það er eins og að stinga tánum viljandi í músagildru.