Archive

Archive for June, 2007

Þegar við systkynin sitjum bæði frammí

June 24th, 2007

Nú verður flutt örleikritið “Aftursætisbílstjóri í framsætinu”
Leikendur eru:
Þórhildur: Bílstjóri.
Sverrir: Aftursætisbílstjóri.
Steinunn: Farþegi í aftursæti.

Sviðið er rauður Subaru Impreza á rennblautum og flughálum malarvegi, á leiðinni á RORUVG fundar- og veisluhöld í Skorradal.
Mikil sól, blindhæðir og beygjur.
Aksturshraði í lægra lagi vegna óöryggis og aðstæðna.
Framundan, aðeins neðar í brekkunni er kröpp beygja með 50 km hámarkshraða.
Aftursætisbílstjórinn tekur mikið viðbragð, baðar út öllum öngum og segir með miklum æsingi: “Gefðuí, gefðuí! Það er 50 km hámarkshraði framundan!! Gefðuí AAARGH!”
Bílstjórinn ullar framan í aftursætisbílstjórann í tilefni þessarar hótfyndni hans.
Farþeginn afturí flissar að kjánalegri samvinnu systkynjanna við aksturinn.

Uncategorized

Talandi um valdarán og stöff

June 20th, 2007

Talandi um valdarán Mahmoud Abbas! Hvernig væri að kenna mönnum að kalla hlutina réttum nöfnum áður en þeim er treyst fyrir ábyrgðarstöðum. Hamas var kosið í lýðræðislegum kosningum. Aðgerðir Abbas eru aftur á móti valdarán samkvæmt mínum bókum.

Mér finnst ekkert varið í það að eiga bíl. Eintómt vesen og leiðindi.
Einu ljósu punktarnir við bíleignina eru þeir að Ásta frænka mín á helmingshlut í faratækinu. Og ég á tvo eldri bræður sem reynast vel í björgunarstörfum þegar þarf hjálpa til við að redda nýbökuðum og rugluðum bílaeigendum frá glötun.

*Give me a break* Ég er bara verkamaður í heimspekinámi. Það kemur alltaf vélvirki og reddar málunum þegar tækin bila inn í skála.

Var að vinna á baráttudeginum 19. júní.
Ég hef hvort sem er mikla fordóma gagnvart bleikum. Einstaklega óþolandi litur. Af hverju getur litur kvennréttindabaráttunnar ekki verið eldrauður, vínrauður eða dökk fjólublár? Þetta eru allt töff litir sem ég fíla! Ég væri líka alveg sátt við appelsínugulan, hann er að vinna á hjá mér.

striphandler.ashx.gif
Finnst þetta frekar fyndið…

Uncategorized

Á stórhátíðarkaupi… held ég

June 18th, 2007

Í gær var víst 17 júní.
Ég missti af honum eins og í síðustu skiptin.
Við fengum viðurstyggilegan mat í vinnunni á þessum hátíðardegi, ég henti honum. Það eru takmörk fyrir því hvað er hægt að bjóða manni. Örbylgu-upphitun er ekki kúl.
Ég er heldur ekki hrifin af eplakökum. Við erum bara ósammála um þetta mál Ásta.
Það var eins gott að maður var á stórhátíðarkaupi, eða það held ég. Alla vega yfirvinnukaupi.

Þá hef ég ekkert meira að segja áður en ég fer á næturvaktirnar.
Lagið I remember með Damien Rice sem skiptist upp í tvo gjörólíka parta bæði tilfinningalega og tónlistarlega séð, líkt og það væri tvo ólík lög, segjir allt sem mig vantar orð til að tjá. En hefði átt að losa mig við og gleyma fyrir löngu. Ég stunda það ekki að birta lagatexta á blogginu mínu, en ég mun gera undartekningu á því núna.

I remember it well
the first time that I saw
your head ‘round the door
’cause mine stopped working.
I remember it well there was wet in your hair
I was stood in stare and time stopped moving.
I want you here tonight I want you here
’cause I can’t believe what I found
I want you here tonight want you here
nothing is taking me down.
I remember it well
taxied out of a storm
to watch you perform
and my ships were sailing.
I remember it well
I was stood in your line
and your mouth your mouth your mind.
I want you here tonight I want you here
’cause I can’t believe what I found
I want you here tonight want you
‘cause nothing is taking me down down
‘cept you my love…
‘cept you my love…

Come all ye lost
dive into moss
I hope that my sanity covers the cost
to remove the stain of my love
paper maché.
Come all ye reborn
blow off my horn
I’m driving real hard
this is love this is porn
god would forgive me
but I…
I whip myself scorn, scorn.
I wanna hear what you have to say about me
hear if you’re gonna live without me,
hear what you want,
I remember December.
And I wanna hear what you have to say about me
hear if you’re gonna live without me
I wanna hear what you want
what the hell do you want?

…þá verður hvorki hugsað né rætt um þetta meir

Uncategorized

Sumt fólk er bara fífl

June 14th, 2007

Úff! Við að líta svona ómerkileg og illa ígrunduð komment við annars glæsilegri og mjög góðri ályktun frá duglegum félögum mínum í Hernaðarandstæðingum fær mig til að fórna höndum. Hvert er greind mannkynsins að fara? Mér sýnist hún að mestu leyti vera komin norður og niður.

Vil ég gagnrýna þennan ljóta ósið stæðilegra fréttavefsíðna að leyfa birtingu kommenta og tengja blogg frá hinum og þessum utan úr bæ við þær fréttir sem birtast á vefnum. Mér finnst það skítavinnubrögð og bera vott um núll metnað.

En jæja, það er eins gott að sætta sig bara strax við það að sumt fólk er óviðbjargandi fífl…

*fyrirgefiði að ég skuli dirfast að vera á móti stríðsbrölti, vígtólum, drápum, eymd, ranglæti og hræsni stríðsmangaranna. Skal ekki dirfast að láta ykkur fíflin vita af því næst* hér er góður staður fyrir kalhæðnislegt glott til að gefa þessu meiri spyrnu*

…ég hef mikla fordóma gegn heimsku fólki.
Það er minn veikleiki eða kostur eftir því hvernig viðkomandi vill líta á málið.

Uncategorized

Hrossaflugan mín = my “daddy-long-legs”

June 13th, 2007

Þetta blogg er tileinkað hrossaflugunni sem dvelur inn í herberginu mínu þessa stundina.
Samvistum okkar miðar vel áfram og engin alvarleg ágreiningsmál hafa komið upp á milli okkar ennþá. Ég hef nokkuð góða trú á að þetta verði friðsamt og gott platónskt samband. Þó að ég efist stórlega um að það endist út vikuna, hvað þá mánuðinn. Tel að hvorki ég né “daddy-long-legs” séum til í að fara út í neinar skuldbindingar.

En þetta verður örugglega ágætis tilbreyting í fáeina daga, að hafa loksins gæludýr á Baldursgötunni.
Mig langar í hund, helst að fá bara Skolla hingað til okkar Sverris.
En heimilisaðstæður bjóða eiginlega bara upp á hrossaflugur, í bili alla vega.

Uncategorized

Sorgarfrétt af ótímabæru andláti á netinu

June 12th, 2007

Ég syrgi Múrinn.
Ég hef lesið hann grimmt (með fáeinum hléum reyndar) síðan á öðru árinu mínu í fjölbraut.
Veit að ég er lengi að taka við mér við að votta honum virðingu mínu og tjá yfirvofandi söknuð. En það á heldur ekki að ætlast til of mikils þegar maður er dottinn inn í vaktavinnuna á sumrin.
Ég er lélegur sumarbloggari…
… er aftur á móti miklu duglegri við að ganga í pilsum dagsdaglega, það er vonandi sárabót.

Oh hvað ég skil hann Jack Skeleton…
nightmare-before-christmas-.jpg
… er allt vonlaust núna?

Uncategorized

Í sveitinni minni

June 4th, 2007

Búin að vera í kæru sveitinni minni, Smiðsgerði í Skagafirði, í vaktafríinu sem rennur sitt skeið í dag. *úff*

Ég finn mig einungis knúna til að setja inn nokkrar myndir sem við Ásta tókum á myndavélina hennar.

Ég og Kolskeggur
E%CC%81g%20og%20Kolskeggur.jpg

Mamma og Skolli voru með í för
Mamma.jpg

Skolli.jpg

Ásta og Þangbrandur
A%CC%81sta%20og%20%C3%9Eangbrandur.jpg

Það var farið í torfbæjarsafnið í Glaumbæ, svona upp á sportið.
E%CC%81g%20i%CC%81%20Glaumb%C3%A6.jpg
(Ég er ekki að snerta sýningargripi, bara aðeins að kíkja…)

Það var að vísu rok á okkur, en þó ekki rigning eins og fyrir sunnan. MÚHahahaha, gott á ykkur hin!
E%CC%81g%20og%20A%CC%81sta.jpg

Þetta er pleisið, Smiðsgerði
Smi%C3%B0sger%C3%B0i.jpg

Það var mikill hamagangur
E%CC%81g%20i%CC%81%20Smi%C3%B0sger%C3%B0i.jpg

Og Ásta reyndi við öll hrossin.
A%CC%81sta%20og%20Kolskeggur.jpg
…það fylgir ekki sögunni hvernig gekk hjá henni

Over and out
E%CC%81g%20og%20A%CC%81sta%202.jpg

Ég hata það þegar Fréttablaðið kemur ekki á morgnanna á Baldursgötuna

Uncategorized