Sumrin mín
Nokkrar stuttar staðreyndir um sumrin mín:
Ég nenni ekki að blogga, enda lítið til að blogga um.
Ég fylgist illa með fréttum og því sem er að gerast.
Ég djamma mun minna en á veturna.
Ég reyni að vera sem mest í sveitinni minni í Skagafirði.
Líf mitt er slitið upp með rótum og snúið í nokkra hringi í hverri viku því ég vinn vaktavinnu.
Ég missi af flest öllum atburðum og húllúmhæi því ég er að vinna vaktavinnu.
Ég veit oftast ekki hvaða vikudagur.
Ég er sjaldnast til staðar þegar reynt er að ná í mig eða þegar á að fá mig til að gera eitthvað.
Það er syndsamlega heitt í vinnunni.
Ég gerist sæmilega stæður verkamaður í staðinn fyrir að vera fátækur námsmaður.
Og er Tóta PowerPuffGirl nr.1587
…heyrumst eftir dúk og disk
Verður það þetta eða Kolviður sem bjargar heiminum?
