Tilgangslaust, ópólitískt og þreytulegt blogg
Ég er dösuð…
Lífið er ekki mjög gefandi í augnablikinu eftir strembna vaktatörn, extra lítinn svefn miðað við áreynslu og massíva tiltekt. Svo ég ætla bara að setja eitthvað einfalt hérna inn til að sýna lífsmark hér á köngulóarvefnum.
Ég er í fríi fram á mánudag
stödd í Reykjavík,
svo grípið tækifærið,
þetta gerist ekki á hverjum degi yfir sumartímann hjá mér.
*Trönuberjasafi og hafrakex er málið
sem og fallegir karlmenn
*Daniel Brühl, sem lék aðalhlutverkið í Goodbye Lenin, er dæmi um mjög fallegan karlmann að mati okkar Ástu*

…hann er meira segja þýskur og með skegg…
Ég er eiginlega barasta pínu skotin í honum, þó að hann sé þýskur
Hverjum hefði dottið það í hug!