Fékk mjög fyndið komment á mig um daginn frá strák á fyrsta ári í heimspekinni. (Vá ég er komin með titilinn; nemi á öðru ári, þetta líður alltof hratt)
Við sátum nokkur upp í Soffíubúð að tala um allt og ekkert um daginn. Einhvern tímann í samræðunum var það dregið upp, af öðrum en mér, að ég er í Ungum Vinstri-Grænum. Þá spyr fyrst árs neminn mig:
“Já, ert þú svona fórnarlamb?”
“Ha?”
“Þú veist svona, fæddist kommabarn og þekkir ekkert annað”
Þetta er í fyrsta skipti sem nokkur hefur skilgreint mig sem saklaust fórnarlamb vinstrisinnaðra hugmynda foreldra minna.
Ó mig auma, ég er svo mikið fórnarlamb.
Ég hef meiri áhyggjur af fórnarlömbum herforingjastjórnarinnar í Búrma.
Uncategorized
Eins og ég hafði tilkynnt ófáum að þá eyddi ég allri helginni í Þing Unga Fólksins. Þar mættu ungliðar frá öllum flokkum. Ungir frjálslyndir mættu að vísu bara á setningarathöfnina á föstudaginn. Ég er reyndar alltaf jafn hissa á því að sú ungliðahreyfing sé til og afhverju formaðurinn er á móti félagsmiðstöðvum. Veit að ég er ekki ein um þær vangaveltur.
Gæðin þarna voru mjög misjöfn.
En við í RORUVG gerðum okkar besta til að bæta það upp með okkar margrómuðu útgeislun og vitsmunum. Við vorum yfirmáta samviskusöm og opnuðum rauðvínsflösku strax á fyrsta ungliðahreyfingafundi.
Það fækkaði meira í hópi vínglasa á Baldursgötunni þetta föstudagskvöld. Það fylgir víst þegar menn þurfa að leggja áheyrslur á orð sín en kom ekki í veg fyrir góða mætingu daginn eftir. Tel að Sverrir þurfi að vera meira heimavið, þetta gerist bara þegar hann er ekki á landinu.
Ég og Elli, öðru nafni fúla fólkið, enduðum í algjörri “krútt-nefnd” þar sem allir voru svo miklir vinir (eða þóttust að minnsta kosti vera það). Sátum í svo dúnmjúkum og rósóttum sófum að við alveg linuðumst upp og rifum voðalítið kjaft, eins ótrúlegt og það hljómar. Það voru barasta flestir alveg sammála um jafnrétti og lífsgæði, bara ekki sammála um aðferðirnar.
Það voru víst ekki allir jafn heppnir frá okkar vígstöðvum.
T.d. vilja allir hinir flokkarnir sleikja sig upp við helvítis NATO, sem mér finnst að megi fara norður og niður.
Okkur var líka mjög ómaklega úthúðað vegna þess að við viljum ekki sjá trúboð, undir sauðagærunni Vinaleiðin, í skólum.
Og fleira og fleira…
Kvöldið byrjaði vel heima hjá fallega formanninum okkar, Auði, þar sem farið var í kjánalega drykkjuleiki. Síðan var þrammað í Framsóknarhúsið syngjandi Veislusönginn og mjólkandi hvítvínsbeljuna (að vísu eftir eitt stykki innbrot). Þar brilleraði Svavar Knútur sem flutti Mengum Ísland, sem var gjöf okkar til Ungra Framsóknarmanna og Aríar fyrir Unga Frjálslynda, sem mættu ekki á svæðið. Synd og skömm.
Tel ég að öllu hafi verið gerð góð skil þessa kvöldstund.
Sérstaklega vil ég minnast á þann þverpólitíska stuðning sem myndaðist á laugardagskvöldið um þarft verk. Hver segjir svo að Ung Vinstri-Græn og Ungir Jafnaðarmenn geti ekki unnið saman?
Svo gólum við saman Elli:
Botninn upp!
*Gefum skít í svona Shamefull Useless Stuff*
Uncategorized
Því verður víst ekki neitað mikið lengur.
Ég þarf kaffi
einhvern tímann á fyrstu 3 klukkutímunum eftir að ég vakna
annars fæ ég hausverk.
*úff hvað mér finnst líf mitt hafa þyngst eftir að ég náði að ávinna mér þessa fíkn*
En þannig er það með fíknina að það er yndislegt að svala henni.
Vonbrigði vikunnar
*Karl Popper er ekki jafn sniðugur hugsuður og ég hélt að hann væri fyrst.
Afsönnunarhyggjan hans neyðir mann til að samþykkja sköpunarsöguna sem vísindakenningu. Hvurslags vitleysa!
*Ég fékk ekki að gerast blóðgjafi núna í vikunni því að ég fæ stundum óútskýrða magaverki og brjóstsviða. Hvað vilja þau? Einungis ofurmenni til blóðgjafar?
Konan í blóðbankanum vildi að ég færi í magaspeglun, ég fæ hroll við tilhugsunina.
*Ég þarf að eyða helginni á Þingi Unga Fólksins. Við í RORUVG reynum að gera gott úr þeirri rekistefnu. Drekkum hjartastyrkjandi jurtaseyði og verðum með almenn róttæklingalæti.
Góða helgi
gott fólk, ofurmenni og skordýr
Uncategorized
Mig er farið að lengja eftir að fá leigusalann, fjallgöngugarpinn og reiða rebelinn með síða hárið heim frá Svalbarða. Það er svolítið einmannalegt hjá mér á Baldursgötunni.
Að vísu villtist geitungur inn í eldhús í morgun.
Ég týndi honum í smá vegis paniki sem greip mig fyrst. Hann var alla vega horfinn þegar ég kom aftur út úr herberginu mínu. Ég náði ekki að lumbra á honum. Svo ef það finnst geitungabú hérna innandyra næsta sumar, þá veit ég hverjum það er að kenna
“Hvernig á fjólublátt blað að segja okkur nokkurn skapaðan hlut um hrafna?”
*er að mínu mati athyglisverð pæling…
hvað með geitunga?
Uncategorized
Ég skrifaði einu sinni ljóð sem birtist á ljóðavef á netinu.
Það er um Maó formann og klósettvegginn minn.
Fyrst hann, þá meina ég Maó en ekki klósettvegggurinn minn, er í bókmenntaumræðunni þessa dagana útaf nýútkominni bók. Þá finnst mér vel við hæfi að taka þátt og birta ljóðið mitt hérna.
Þar sem ég hef ekki lesið bókina.
Með Maó formann inn á klósetti
Það er mynd af Maó formanni á veggnum fyrir aftan klósettið mitt.
Frjáls túlkun er leyfð.
*Það er í alvöru mynd af Maó á veggnum bakvið klósettið mitt*
Uncategorized
Kynþokki er töff
Kynþokki er af hinu góða
Kynþokki er yndisauki
Manneskja sem er sjálförugg, án þess að vera góð eða merkileg með sig, er kynþokkafull
Manneskja sem hefur trú á sjálfri sér og ber sig vel líkamlega (alveg sama hvaða tala birtist á vigtinni) er kynþokkafull.
Manneskja sem er sjálfstæð er kynþokkafull.
Ég hef miklar og margar hugmyndir um kynþokka og hvað sé kynþokkafullt í klæðaburði, hegðun, fasi og líkamsburði mannfólksins en…
þetta er ekki kynþokkafullt!
Þetta er ullabjakk að mínu mati… er ég þá tepra?
Hefur fíflið hann Egill Helgason ekkert betra að gera en að vera sífellt með derring í garð Sóleyjar Tómasdóttur?
Uncategorized
Ég á ekki til orð!
Er trúboð á götum borgarinnar þegar fólk af öllum sviðum þjóðfélagsins fær sér í aðra tánna, það sem koma skal?
Á hallelúja og önnur heilagsandahopp að bjarga mér og samborgurum mínum frá áfengis-og næturskrallsbölinu?
Það er svosem bara skítsæmilegt um það að segja að hertari löggæsla um helgar sé komin til að vera. Eða alla vega þangað til að við förum að hegða okkur eins og siðprútt fólk á að gera að mati yfirvalda.
En þarna gengur þú of langt Geir Jón!
Ætli að það muni flokkast sem brot á lögreglusamþykkt að ulla framan í trúboða sem reyna að leggja kristilegar gildrur fyrir glaseygt fólk á regnvotum og myrkum götum miðborgarinnar?
Uncategorized
Er einhver þarna úti sem kann að meðhöndla mangó?
Afhýða það og skera niður án óþarfa subbuskaps, átaka og glæpsamlega miklu brottkasti af ávextinum ofan í ruslapokann?
Ef slíkur manósnillingur fyrir finnst á landinu þá má hann alveg hringja í mig eða senda mér skýringamynd.
Ég er ekki á góðri leið með að gerast heimsmeistari í mangóskurði.
Svei, mér finnst mangó nefnilega mjög gott eintómt.
Ég hata það þegar forrit vilja að ég “uppdeiti” þau með því að “dánlóda” nýjasta “krappinu” sem tengist þeim á netinu…. ég segji alltaf “nó”
Mótþróaseggur í tapaðri baráttu
Hversu sorglega hefur líf mitt þróast?
Uncategorized
Jakob hringdi mjög óvænt í mig fyrir tveimur vikum.
Tilefnið var síðasta eignin hans hérna á Baldursgötunni,
sjónvarpið með biluðu fjarstýringunni.
Ég er ekki enn farin að sakna þess.
Kannski að ég fjárfesti í blómapotti eða 3 lítra rauðvínsbelju í staðinn.
Uncategorized
Aldrei á mínum súrustu ímyndunar-fylleríum hefði mér dottið þetta í hug:
Að einhver mundi virkilega reyna að stela heilli stæðu af áli að nóttu til upp í Norðurál.
Að viðkomandi yrði bösstaður við að setja síðustu klumpana í skottið á bílgreyinu sem var orðið sigið niður á eyrnasneplana.
Að ég skuli þekkja aðeins til kauða.
En mér finnst það ekkert skrýtið að hann sé bæði frá vinnu og ónýtur í bakinu eftir uppátækið.
Spurningin er hvort og hvernig hann hafi ætlað að reyna að koma þessum Norðurálsmerktu klumbum í verð?
Eða kannski bara að hlaða sér hús úr þeim?
Hver segjir svo að það sé ekki bæði til hugsjónafólk og vitleysingar í álverum?
*Ál og kókdósir*
Uncategorized