“Kaupum ekkert í dag” dagurinn er í dag.
Þetta er skemmtileg setning.
Ég fór í Bónus áðan til að kaupa mér að borða og Krambúðina til að kaupa mér bland í poka. Það gerðist áður en ég gerði mér grein fyrir því hvaða dagur væri í dag.
Ég skammast mín gríðarlega.
Í gær fór fram gríðarlega velheppnuð Kommúnusamneysla hjá okkur syskynjunum á Baldursgötunni. Elduð var hrossaréttarkássa sem runnin er undan rifjum foreldra okkar. Engin glös brotnuðu (enda Sverrir á landinu) og nóg af veigum.
Uncategorized
Það er svo greinilega eitthvað rangt við þetta
Frjálslynd jafnaðarstefna….ha?
*bráðum fara þeir að bera fram hafragrautinn með chillipipar og hlaupböngsum*
Á meðan öskrar Hannes Hólmsteinn á mig og hina stjórnspekinemana:
“Hvar eru allir vinstrisinnuðu menntamennirnir!”
Finnst það svo rangt að þurfa að taka undir spurninguna með honum
liggur við að ég sé ennþá skítug
-þvottur upp úr vítissóda nauðsynlegur?
eins og börn einhverrar Evu sem stundum er minnst á.
Fara þau líka til helvítis Stefán Einar?
Afhverju eru allt vinstrisinnaða menntafólkið alltaf bara í sleik
og það alltof oft við auðvaldið?
Uncategorized
Ég hef gerst latur bloggari.
Plís ekki berja mig.
Ég hef of mikið að gera.
Annað hvort allt eða ekkert.
*Þakka Sæla og Hansa fyrir besta eftirmat sem ég hef smakkað*
Töff: Hljómsveitin Bloodgroup
Ekki töff: Vefsíðan skaparans
Þeir sem standa að svo skít ómerkilegri, viðurstyggilegri og ómálefnalegri umræðu á netinu án þess geta skrifað undir nafni, eiga bara að halda kjafti.
Að vísu eru margir sem skrifa undir nafni sem ættu að halda kjafti líka.
Og nafnlausir bloggarar sem hitta oft naglann á höfuðið, oftast á mjög ögrandi hátt.
En svona höfundalaust kjaftæði er ekki svaravert. Það á ekki umræðuna skilið.
Ekki gera þessu liði það til geðs að taka þátt í lágkúrunni.
Ekki sýna þeim of mikla og óverðskuldaða athygli.
Og þar með eyði ég ekki fleiri orðum eða mínútum af mínum dýrmæta tíma í lágkúruna.
*Svona skíta orðræða er ekki til umræðu*
Uncategorized
Fór í sumarbústaða-vinnuferð með RORUVG stjórninni minni um helgina. Þar var mikið rætt, rökrætt og hugleitt um komandi starfsár og aðgerðir.
Finnur velti mörgum steinum hvað varðar skilgreiningar á rusli þegar átti að fara að taka til á sunnudaginn. Elli færði einleiki upp á hærra plan þegar hann lék stjórnlausan mathák við kvöldmatarborðið. Það voru suðræn þægindi í heita pottinum, drukkinn bjór og pörin fóru í sleik.
Það er mánudagsmorgunn, 12 nóv.
Þarf vonandi ekki að taka það fram að dönsku kosningarnar verða á morgun og ég á afmæli.
Fékk fyrstu afmælisgöfina fyrir helgi. Drykkur sem barþjóninn og lögfræðineminn Skúli hannaði. Ég og Ásta tókum þátt í smökkun í miðju þróunarferlinu. Ég kolféll fyrir drykknum. Í staðinn hefur drykkurinn verið nefndur Tófan eftir mér. Ég fer hjá mér við heiðurinn.
Vonandi verður súpt á þessu í vikunni:

Uncategorized
Ég og Sverrir gerðum stórinnkaup hjá “óvininum” í dag. Það er að segja Bónus.
Meina, ekki er hægt að hætta að versla sér æti þó að það sé hugsanlega verið að svindla feitt á manni.
Það er alveg ógeðslega mikið til að mat núna.
Ég kannast ekki við ísskápinn þegar ég opna hann,
fer hjá mér við að góna svona inn í hann.
Vanalega er hann nánast tómur eða fullur af áfengi.
Nú er hann hvorugt.
Þróun?
Uncategorized
Fjúff.
Komin heim frá Osló.
Þetta var rosalegt,
alveg ótrúleg upplifun.
Kynntist helling af fólki frá öllum norðurlöndunum.
ungum sem öldnum
skemmtilegum og óspennandi
sammála og ósammála mér
gáfulega þenkjandi eða folkefiender.
Og hef eignast loftfimleika-aðdáanda í Osló. Ekki slæmt.
Dæmi um folkefiende voru rasistarnir sem voru með mikið uppistandi og málþóf.
Dæmi um þá sem voru ósammála mér voru þeir hægri menn sem óttuðust að Rússarnir væru að koma til að kúga okkur og héldu því fram að gjaldfrjálsar almenningssamgöngur væru “evil”
Dæmi um skemmtilegt og spennandi var sænska vinstri-konan með svörtu augnmálninguna, sem mér og Auði fannst óendanlega töff.
Svo margt fleira!
Við Auður sungum Veislusönginn í matarboði heima hjá sendiherranum. Hneyksluðum líklegast Halldór Ásgrímsson með uppátækinu
Er komin í enn eina stjórnina. Nú er ég komin í forsetanefnd (præsidiet) Norðurlandaráðs æskunnar, sem fulltrúi SUN (Socialistisk Ungdom i Norden) á Norðurlöndum. Hef þar með seturétt á fundum velferðanefndar Norðulandaráðs.
Frekar kúl stöff.
Sé fram á fleiri ferðir til norðurlandanna á næsta ári.
Eins gott að ég tali dönsku, skandinavískan er ekki upp á marga fiska hjá mér ennþá. Ég hélt mér alltaf nálægt buxnafaldinum hennar Auðar.
Uncategorized