Archive

Archive for December, 2007

Álag skemmtanalífsins

December 20th, 2007

Jólaglögg með heimspekinemum í gær.
Útskriftarpartý hjá Regínu (litlu frænku) á föstudaginn.
*Til hamingju með útskriftina*
Og þetta hjá RORUVG:

proflokWEB.jpg

…hvenær á ég eiginlega að finna tímann til að mæta í vinnuna?
ég er með hausverk

Uncategorized

Athyglisvert… og fíll líka segiru?

December 15th, 2007

Áhugaverð staðreynd um hliðstæð mál í boði Vésteins Valgarðssonar

Ég er að læra fyrir próf í þekkingarfræði
og hlusta á PartýZone

En svona almennt eðlis,
skyldi nokkuð vera mikil von á að lenda í eftirfarandi aðstæðum í raunverulegu lífi?
Munurinn á áreiðanleikakenningu og þekkingardyggðarfræði
- A myndar þá skoðun að þegar hann heyrir fallbyssuskot í 1812 forleiknum eftir Tchaikovsky, þá sé stór, grár hlutur nálægur
- A heyrir fallbyssuskot í 1812 forleiknum og myndar skoðun um að stór grár hlutur sé nálægur
- skoðunin er sönn vegna þess að stór fíll er rétt hjá með útvarp hangandi um hálsinn sem spilar forleikinn
- miðað við aðstæður er skoðunarmyndun hans mjög áreiðanleg, en ekki afurð þekkingardyggðar

Bara svona gáfulegheit úr þekkingarfræðinni fyrir svefninn…
*tel að rökfræðingar með of mikið ímyndarafl séu vafasöm fyrirbæri*

…og já, kommentakerfið er eitthvað bilað

Uncategorized

Um bakþanka nöfnu minnar Elínar Elínardóttur

December 14th, 2007

Í kjölfar reiði minnar og pirrings vegna þessa illa ígrundaða bakþanka nöfnu minnar, Þórhildar Elínar Elínardóttur, sem er uppfullur af rangfærslum og ber þess vott að viðkomandi pistlahöfundur hafi ekki kynnt sér málin sem skildi. Þá vil ég benda á þetta hnitmiðaða andsvar við staðhæfingum hennar sem er slengt fram af engum metnaði eða sannleiksgildi.
Ég vænti þessa að nafna mín muni leggjast í betri og ýtarlegri upplýsingaöflun um staðreyndir mála næst þegar hún finnur til þeirrar löngunar að básúna fleypur og lygar á bakhliðum Fréttablaðsins. Metnaður er lykilatriði.

Ég varð að koma þessu að. Orðræða sem er full af lygum og staðreyndavillum má ekki fá að vaða uppi.

Uncategorized

Það er jarðskjálfti í kjallaranum mínum

December 14th, 2007

Bora! Brjóta! Bramla!
Djöfulsins óhljóð og hávaði er þetta.
Já það er rosalega fjörugt heima hjá mér núna í miðjum prófum og ritgerðasmíðum,
skildi þetta hafa áhrif á jarðskjálftamæla?
Þeir eru víst að nema einhvern óróleika núna.
Að vísu er sagt að upptök óróleikans eigi sér stað við Upptyppinga sem eru 20 km austan við Ösku og fyrir norðan Vatnajökul.
Smá staðsetningarvilla.
Tel að upptökin eigi sér stað í kjallara á Baldursgötunni í 101 Reykjavík.

Mér finnst einstaklega óþægilegt og truflandi að læra upp á Bóhlöðu.
Byrja alltaf að fylgjast með fólki,
allt þetta fólk!
Hvernig á ég að geta hamið mig?
Ég held að ég haldi mig annars staðar.

Og hverjum datt það allt í einu í hug að breyta blogg-heimasvæði okkar Kommúnubúa?
Ég var orðin svo klár á það sem var fyrir.
Vonandi kippist athugasemdakerfið þó í lag aftur við þetta.

p.s. ég er orðin rosalega fúl á móti þessu nýja kerfi. Búin að eiga í miklum óþarfa stympingum við að birta þessa færslu

Uncategorized

Þegar framtíðar fyrirbærið ég gegn í salinn…

December 12th, 2007

Ég held mikið upp á lagið Marche Pour La Cérémonie Des Turcs.
Mjög tilkomumikið,
enda barokk.

Ef ég verð voða merkilegt og frægt fyrirbæri í framtíðinni, hvernig sem það skyldi geta gerst, þá vil ég að Marche Pour La Cérémonie Des Turcs sé alltaf spilað þegar ég gegn í salinn á mannamótum.
Oh the glory!

Uncategorized

Jólakanínur, klósettpappír og kynþáttasáttmálinn

December 9th, 2007

Á föstudaginn keypti ég klósettpappír með jólakanínum.
Jól og kanínur!
Ég er klárlega að græða jól og páska á þessu. En þarf sem ég er guðleysingi og búin að segja mig úr þjóðkirkjunni, þá mátti ég örugglega ekkert kaupa þetta.
Skildi biskupinn, Reynir Traustason og Stefán Einar vita af þessu?

En meina, hver getur staðist mátið þar sem þessi herlegheit deila hillum með bónusklósettpappír og euroshopper?
Greinilega ekki ég.
Alla vega búið að vera miklu skemmtilegra og nánast upplífgandi að fara á klósettið þessa helgina.
Mæli með þessu yfir prófatarnir. Klósettpappír með myndum er málið.

*Mig langar að vera eins og Emilie Simon, hún er töff, sæt, semur kúl lög og talar frönsku*

…og mig langar í bókina The Racial Contract eftir Charles Mills, eða alla vega að redda henni og tímanum til að lesa hana alla.
Á ég kannski að byrja á The Sexual Contract eftir Carole Pateman?
ó mig auma hvað lífið er erfitt og flókið…

Uncategorized

Hræðist D-listinn menntun?

December 7th, 2007

Það mætti barasta halda það…
hverjir eru alla vega búnir að halda utan um menntamálaráðuneytið síðan ég man eftir mér?
Má ég svara, má ég svara, má ég svara?!?!
Ég veit þetta!
Víst veit ég þetta!
… eru það ekki bláafólkið þarna með fuglinn?
Sko ég vissi það víst!

Menntun og vitneskja æskunnar hrapar og hrapar
en reddast það nú ekki bara,
við erum víst best í heimi,
það segir fólk í útlöndum alla vega.
Ég held að það sé alveg pottþétt að D-listinn hræðist menntun,
meina það getur ekki verið að hann vilji virkilega að kjósendur fari að hugsa gáfulega. Mundi þá í alvöru einhver fjöldi kjósa hann?

p.s. ég man ekkert eftir því hvenær ég man fyrst eftir mér

Uncategorized

Allt á leið upp á háaloftið!

December 6th, 2007

Hvað er eiginlega í gangi?
Próf handa við hornið, jólin í næsta bakgarði og það er allt að vera sótbölvandi vitlaust í kringum mann út af öllu öðru.

Ljóshærður gaur sem kenndur er við hnakkakynstofninn (ég neita að saurga síðuna mína með því að birta þetta fáránlega nafnskrípi hans á henni) hótar feministum nauðgunum á veraldarvefnum.

Maður gerir ekki annað en að heyra um yfirvofandi niðurskurð innan Landspítalans. Eins og heilbrigðiskerfið sé ekki svelt nóg fyrir!
Ennþá fleiri þurfa að leita ásjár mæðrastyrksnefndar til að geta haldið jólin.
Og það eru víst fúlgur fjár eyrnamerktar vörnum Ísland og öðrum hernaðarmálum í nýja fjárlagafrumvarpinu.
Hvurslags firring er þetta!

Þjóðkirkjan nötrar öll af æsingi og biskup Íslands með henni. Verð nú bara að segja að það er algjör óþarfi að eiga óvini þegar maður á svona líka málefnalega og sniðuga bandamenn.

Ég er alveg sammála þessu bara almennt séð. Þó að ég hafi ekki hundsvit á því hvað tiltekin Silfursþáttur fjallaði um.
Kommon konan kaus gegn því að þvertaka ætti fyrir að sköpunarsagan yrði kennd í skólum því hún álítur að það sé ekkert búið að sanna þróunarkenninguna. Og það gerði hún sem fulltrúi Ísland á alþjóðavettvangi! Hvenær var ég spurð að þessu Guðfinna?

Já ég er pirruð og reið.
Er að skrifa ritgerð og læra fyrir próf.
Það er bæði kalt og einmannalegt.

Uncategorized

Var Bush bara að plata… aftur?

December 4th, 2007

Merkilegt nokk!
Getur það verið að Bush hafi bara verið að plata okkur… aftur?
Varla hefur hann verið að ljúga, maður í þessari ábyrgðastöðu út í hinum stóra heim.
Mesta lagi að skrökva smá
eða beygja sannleikann aðeins.
Hugsanlega bara saklaust grín sem þeir Cheney misstu út úr höndunum á sér.
Meiri sprelligosarnir þarna í Bandaríkjunum.

Eða hvað?
Er von að maður spyrji!

Hverju skipta fjögur ár til eða frá,
þeir voru ALLA VEGA að þessu þá og það er höfuðatriðið samkvæmt Bush
*hóst* og ekki lýgur hann…*hóst*

Uncategorized

Að viðurkenna árásir

December 3rd, 2007

Það verður að teljast skref í rétta átt þegar andstæðingurinn ferð loks að viðurkenna að það sé víst eitthvað verið að ráðast gegn honum og trúboðinu.
Takk, Karl Sigurbjörnsson, það er alltaf erfitt ferli að játa svona hluti.
Afneitun er sterk vopn
misnotkun algeng.

Eyddi meira en bróðurpartinum uppá Bókhlöðu í dag. Sjáum til hversu heilsusamlegt það mun teljast. Alla vega gott fyrir námið, ekki fyrir bakið.

Það eru til smákökur og jólabjór á Baldursgötunni, gleði okkar systkynjana er ótakmörkuð.

Uncategorized