Archive

Archive for January, 2008

…og Stokkhólmur á morgun

January 27th, 2008

Nokkur atriði úr atburðarás síðustu og komandi daga:

Rosaleg mótmæli!
“Hvað með skyldu okkar til að mótmæla?”
Byltingarpartý á fimmtudagskvöldi.

Að vakna kl 5 með hugljómun,
framsaga um félaga Karl Marx og blætiseðli vörunnar.
Gríðarlega góð kaup og óvænt gjöf frá mömmu.
Heimspekinema bjórkvöld.

Ég, pabbi og Zizek.
Heimspekilegt partý.
Friðarfundarbröns

Og svo Stokkhólmur á morgun,
já það er pólitíkin.
Mín býður fundur í forsetanefnd Norðurlandaráðs Æskunnar
ofsalega hljómar þetta virðulega.

*ég er orðin rosalega skotin í sushi. Kristún á heiðurinn*

Uncategorized

Ert ÞÚ sátt(ur) með nýja borgarstjórnar-meirihlutann?

January 23rd, 2008

Obbobobb í ráðhúsinu… er þetta nýr sleikur?

January 21st, 2008

Þetta er nú meiri vitleysan.
Valdagræðgin er hvern mann að drepa í ráðhúsinu
eins og hnífaparasettin í Framsóknarflokknum.

Það er ekki laust við að ég sé orðin hneyksluð á þessari framkomu borgarstjórnarfulltrúa gagnvart íbúum Reykjavíkur. Það er sko enginn að fara að segja mér að nokkur lífandi eða dauð sála í þessu hringleikahúsi sé að hugsa um hag þeirra. Heldur er atkvæðum, langlundargeði, trausti og peningum skattborgaranna fleygt eins langt og augað eygir út á tjörn
þar sem svanir og mávar éta það allt.
Það eina sem skiptir máli eru völd og hefndir.
Ekki að ég haldi að himininn hrynji núna ofan á okkur með þennan nýja meirihluta þó að ég sé alls ekki sátt við hann.
Ég var heldur aldrei fyllilega sátt við tilurð þessa meirihluta sem er nú orðinn fyrrverandi. Bauð mér þá sérstaklega við því hversu auðveldlega Björn Ingi slapp frá öllu saman,
fékk að vera “memm”
því hann sagði “sorrý” á einhverjum fundi.

En!
Mr. Ólafur F. Magnússon,
ber þú enga virðingu fyrir sjálfum þér?
Ertu alveg búinn að gleyma því hvernig Sjálfstæðisflokkurinn, með Vilhjálm í fararbroddi, kom fram við þig í lok síðustu borgarstjórnarkosninga?
Ég er ekki frá því að þetta hafi verið hnífaparasett sem var í bakinu á þér þegar þú stóðst einn eftir og horfðir upp á Vilhjálm og Björn Inga valhoppa hönd í hönd út í sólarlagið.
Finnst þér kannski að það sé kominn tími til að þú fáir að fara í sleik?

…tja, samkvæmt mati okkar í ROR-UVG þá er sleikur í raun mannréttindi og ekki viljum við að menn séu sviptir mannréttindum, þó að þeir hafi ekkert fylgi á bak við sleikinn, það er bara smámunasemi…

Uncategorized

Þetta er ekki blogg um Fischer

January 19th, 2008

Ég ætla ekki að blogga um Bobby Fischer.

Ég hef aldrei fílað skák
og fundist það kjánalegt að heita Bobby.

Mikið getur hann Nick Cave verið suddalega klúr stundum.

“But there’s a little guy on my shoulder
Says I should go home alone.
But you keep leaning in on me
And you’re looking pretty pissed
That grave you’ve dug between your legs
Is hard to resist.”

Little Empty Boat af plötunni B-Sides And Rarities Volume III með Nick Cave & the Bad Seeds

Uncategorized

Rússnesk áróðurslist

January 17th, 2008

The End of St. Petersburg er svakaleg mynd.
Sá hana í kvikmyndaheimspeki-áfanga fyrir jól.
Rússnesk áróðursmynd frá árinu 1927 eftir leikstjórann Pudovkin.
Þetta er montage list.
Mig langaði að fara út, grafa skotgrafir og berjast við kapitalista eftir áhorfið.
Blóð, sviti, tár
og viðbjóður kapitalismans í verki

Þetta verður að teljast mjög jákvætt. Auðvitað eigum við treysta kennarastéttinni einna best. Hún sér um menntun og samfélagsþroska æsku landsins. Það er ekkert vit í því að treysta mönnum eins og Karl biskupi og Árna Mathisen.

Uncategorized

Stela framsóknarmenn?

January 15th, 2008

Þjófnaður ?

…nei því trúi ég nú ekki upp á framsóknarmennina,
vilja greinilega bara vera með okkur í ROR-UVG
enda svo snjöll og sniðug að búa til barmerki

Uncategorized

Sneið fyrir háttinn og pólitísk rétthugsun á barnum

January 12th, 2008

Konan sem afgreiðir á næturnar á Pizza King er farin að þekkja mig.
Í nótt var mér heilsað mjög kumpánlega með brosi og elskulegheitum eins og gömlum og góðum kunningja,
hún var ekki jafn “kammó” við aðra,
að mér sýndist

Spurning hvort að það komi einum of oft fyrir að maður versli sér eina sneið fyrir háttinn,
eftir öldurhúsa brambolt næturinnar.

Í gær fann ég mig knúna til að halda mikla ræðu yfir ungum manni um mikilvægi einstaklingframtaksins,
eins og að sniðganga vörur frá vondum og spilltum (risa)fyrirtækjum eða ákveðnum löndum,
í þeirri baráttu að reyna breyta heiminum til hins betra.
Þó það væri ekki nema þín eigin samviska og nánasta umhverfi sem þú persónulega nær að bjarga eða breyta.

Hann hætti snarlega við að reyna við mig.
Kannski að pólitísk rétthugsun muni ryðja gervi-trúlofunahringjum út vegi sem ráð við óþarfa viðreynslum?

Uncategorized

Djöfullinn! Sirkus líka?

January 11th, 2008

Hver andskotinn er að gerast?
Jú ég var nú búin að heyra af þessum þreifingum um að rífa Sirkus áður, en vonaði í einfeldni minni að slíkt hafi verið þaggað niður því ekkert barst mér til eyrna um málið í langan tíma.
En nei, þannig var það nú ekki heillin mín.
Síðustu dagar Sirkus eru víst að renna upp.
Djöfullinn hafi það!
Ég get ekki vælt sem mikill fastakúnni eða sem artífartí-frægur-íslendingur í pallíettum og lopapeysu. En ég get samt rifið kjaft.
Gerir enginn, sem vald hefur í þessum málum, sér grein fyrir frægð, sérstöðu og aðdráttarafli þessa litla og spes staðs?
Í alvöru talað?
Þegar pólitískur félagi minn og vinur frá Finnlandi, Tuomas, kom í fyrsta sinn í heimsókn til Íslands síðasta haust, til að taka þátt í landsfundi UVG, þá sagði hann við mig að það væri eitt sem hann yrði að gera í Reykjavík.
Það var að fara á Sirkus.
Finnst engum það sniðugt nema mér, Sverrir og hugsanlegu öðru RORUVG-liði að félagi okkar í Vasemmistonuoret í Helsinki skuli þekkja til þessa eina bars á Íslandi og finnast það algjört “möst” að fara á hann?

Já ég er rosalega reið og pirruð útí ýmsa Íslendinga þessa dagana.
Annars er ég bara hress og kát,
enginn lokaeinkunn undir 8, og sú hæsta náði 9,5 sem er algjört met á mínum háskólanámsferli.

Uncategorized

Að vera jólatré seint í janúar

January 10th, 2008

Á götum úti liggja lík.
Saklaus fórnalömb nýafstaðinna átaka við
krakkagríslinga með blóðhlaupin augu og taugakippi af sykuráti,
fólk sem vill muna sinn fífil fegri áður en stjórnlaust átið tók öll völd
og eyðslunni, sem mætti án efa segja ósmekklega á sumum bæjum,
sem var vafið inn í glanspappír
einungis til að vera rifin upp.

Og nú er heiðursgestinum fleygt á dyr.
Nærværunni er ekki lengur óskað
gestrisnin uppurin.
Helvítis barrnálar um alla stofuna!
Jólaskrautið rifið aftur niður og sett ofan í rykuga kassa
jólagjöfum skipt eða sæst er við þær.
Sprengjurnar eru búnar,
krakkarnir farnir í skólann,
og allir eru komnir í megrun (það þykir víst fínna að tala um átak eða “ég-er-að-breyta-um-lífsstíl” í dag)
með nagandi samviskubit.

Ég heyri stunurnar í jólatrjánum þar sem þau liggja eins og misskilið hráviði út um allan bæinn.
Ég heyri líka stunurnar í íbúum Reykjavíkur þegar ég geng um síðla kvölds,
í þeim sem ná ekki alveg að hneppa buxunum lengur
og þeim sem sprengdu kannski aðeins of marga flugelda.

Mikið held ég að það sé erfitt hlutskipti að vera gamalt jólatré á ferð seint í janúar,
tré sem hefur misst af jólatréslestinni vegna óhóflegrar gestrisni húsráðanda.
Þá held ég að það sé skárra að komast ekki í buxurnar sínar.
Hugsaðu um jólatréin sem velkjast um göturnar þegar þú nennir ekki að hreyfa af þér jólakonfektið!
Má segja að það sé lúmskt niðurrifsafl að finna í jólahátíðinni.

*Þessa færslu ber ekki að skilja sem svo að mér sé illa við jólin eða ég hafi þyngst óhóflega yfir hátíðirnar. Því hvorugt er sannleikanum samkvæmt. Jólin hafa alltaf verið mjög hugguleg fjölskylduhátíð á mínu heimili og ekki innihaldið stress eða samviskubit. Annars er mér nett sama þó þið haldið það*

Uncategorized

Á að steingelda miðbæinn?

January 5th, 2008

Ég er brjáluð yfir þessu!
Á að steingelda miðbæinn?
Á að eyðileggja hann algjörlega með hótelum, háum verslunarhúsnæðum og bílastæðahúsum?
Á að planta þessum helvítis gráu steinsteypukössum og klumbum út um allt!
Þessum algjörlega ófrjóu, getulausu, niðurdrepandi og þunglyndisaukandi skríplum??
Það er ekki beysið álit mitt á íslenskri byggingastefnu sem er búin að vera við líði í alltof langan tíma.
Grái, ljótir kassar eins og t.d. Grafarholtið samanstendur af.
Ég fer aldrei þangað,
tel að tilfinningalausa yfirbragðið yfir umhverfinu gæti skaðað mig fyrir lífstíð
Ég kæri mig ekki um að búa í miðbæ sem er jafn óspennandi og leiðinlegur og úthverfin.
Ef ég hefði áhuga á því, þá byggi ég auðvitað í einhverju helvítis úthverfinu!

Ef fer sem horfir, ef allt sem gefur miðbæ Reykjavíkur sinn blæ, sérkenni og tilfinningu,
verður rifið, flutt (tja eða brennt til kaldra kola)
þá er þetta ekki lengur sami bærinn og mér er farið að þykja ansi vænt um.
…my hometown, 101…
Þá verður líklegast vænsti kosturinn í stöðunni að flýja þetta land hinna gráu steinsteypukassa, stjóriðju og plebba.

Fyrst er að sjá hverju verður bjargað
og klára ba, ég sting nú ekkert af fyrr.

*Nei, mér finnst Hlöllabátar bara vondir, líka kl 04:46*

Uncategorized