Home > Uncategorized > Á að steingelda miðbæinn?

Á að steingelda miðbæinn?

January 5th, 2008

Ég er brjáluð yfir þessu!
Á að steingelda miðbæinn?
Á að eyðileggja hann algjörlega með hótelum, háum verslunarhúsnæðum og bílastæðahúsum?
Á að planta þessum helvítis gráu steinsteypukössum og klumbum út um allt!
Þessum algjörlega ófrjóu, getulausu, niðurdrepandi og þunglyndisaukandi skríplum??
Það er ekki beysið álit mitt á íslenskri byggingastefnu sem er búin að vera við líði í alltof langan tíma.
Grái, ljótir kassar eins og t.d. Grafarholtið samanstendur af.
Ég fer aldrei þangað,
tel að tilfinningalausa yfirbragðið yfir umhverfinu gæti skaðað mig fyrir lífstíð
Ég kæri mig ekki um að búa í miðbæ sem er jafn óspennandi og leiðinlegur og úthverfin.
Ef ég hefði áhuga á því, þá byggi ég auðvitað í einhverju helvítis úthverfinu!

Ef fer sem horfir, ef allt sem gefur miðbæ Reykjavíkur sinn blæ, sérkenni og tilfinningu,
verður rifið, flutt (tja eða brennt til kaldra kola)
þá er þetta ekki lengur sami bærinn og mér er farið að þykja ansi vænt um.
…my hometown, 101…
Þá verður líklegast vænsti kosturinn í stöðunni að flýja þetta land hinna gráu steinsteypukassa, stjóriðju og plebba.

Fyrst er að sjá hverju verður bjargað
og klára ba, ég sting nú ekkert af fyrr.

*Nei, mér finnst Hlöllabátar bara vondir, líka kl 04:46*

Þórhildur Uncategorized

  1. Anonymous
    January 6th, 2008 at 14:37 | #1

    Gætir þá prófað að skreppa í gamla Sovét, nú eða til gamla Austur-Þýskalands. Þetta voru lönd sem kunnu að byggja fallegar byggingar!

  2. Anonymous
    January 6th, 2008 at 23:58 | #2

    Stundum getur lýsingarorðum verið ofaukið Þórhildur. og þá sérstaklega ef þú ert með 4 stór, neikvæð og leiðinleg lýsingarorð í röð. Less is more!

  3. January 7th, 2008 at 01:55 | #3

    Vá, hvað mér finnst töff að koma ekki fram undir nafni og vera með leiðindi.

  4. January 7th, 2008 at 10:42 | #4

    Vá mér líka. Ég tek mikið mark á athugasemdum svo hugrakkra manna.
    Held að greyið hafi skrifað nafnið sitt vitlaust líka, það á örugglega ekki að vera neitt “nafn” í “ógreindur”.

  5. January 7th, 2008 at 13:42 | #5

    Ógreindur er megatöff, það liggur fyrir.

    Annars dreymdi mig snilldardraum í nótt. Mig dreymdi að það væri búið að rífa þessi hús og setja steinsteypuhnullunga í staðinn og að ég sniðgengi nýju verslanirnar. Ég hugsa að ég geri þetta þegar af þessu verður, passi sérstaklega að versla aldrei þarna, á sama hátt og ég kaupi aldrei Tópas eða Kók Zero.

  6. January 7th, 2008 at 19:07 | #6

    Djöfull er ég sammála þér með Hlölla!

  7. January 9th, 2008 at 17:20 | #7

    Hehe, rosalega ertu reið ;)

  8. January 10th, 2008 at 12:52 | #8

    Jebb alveg fjúríus :P
    Má alveg ganga lengra með að sniðganga, ég kaupi t.d. ekki nestlé-vörur eða ávexti og grænmeti frá Ísrael.

    Og ég bið fólk mjög vinsamlega um að skrifa athugasemdir með nafni. Ég sé ekki tilgang með því að taka mark á fólki sem kallar sig “ónafngreint”

Comments are closed.