Archive

Archive for February, 2008

Þetta er stjórnmálaskóli UVG ekki VG Egill!

February 28th, 2008

Ég ætti að vera að læra,
í staðinn fór ég að skoða og skrifa blogg.
Er annars að lesa Simone Weil,
djöfull var hún alvöru
eiginlega hálf snar, á góðan hátt samt.

Það verður víst farið á Akureyri á morgun með öðrum róttæklingum í UVG að halda stjórnmálaskóla
…eða má kannski ekki nota orðið “róttæklingur” lengur?
Hringja þá kannski fjölmiðlar í mann til að grennslast fyrir um fyrirætlanir okkar útaf því að sumir aðilar þola ekki að heyra minnst á orð eins og “mótmæli”,”stjórnmál”,”skóli”
og jafnvel eitthvað fleira,
í sama samtalinu.

Afhverju geta sumir menn aldrei sagt rétt frá hlutunum?
Þetta er stjórnmálaskóli UVG Egill!
Ekki VG
… bara til að hafa það á hreinu

Uncategorized

Að hlusta á Murder Ballads

February 23rd, 2008

Skyldu Stagger Lee og Henry Lee vera skildir?
-var mikil pæling einu sinni,
þangað til að Gunnar Örn benti mér á að skoða grein um blökkumannin Stagger Lee á Wikipediu.
Áhugavert,
vissi þetta ekki
verandi þó mikill aðdáandi Nick Cave.

“… eins og að henda sér fyrir leikfangalest”
Svavar Knútur og Hraun að velta fyrir sér misheppnuðum sjálfmorðshugleiðingum.

*Gunnar Örn og Oddur fá rokkstig fyrir bestu danstakta sem sjást hafa í hagfræðingapartý ever sko!*

Uncategorized

Draugablogg

February 21st, 2008

Eftir að hafa glímt hatrammri baráttu við ógurlegt draugablogg sem birtist hérna í gær
og neitaði að yfirgefa síðuna mína fyrr en núna,
þá er mér orða vant.

Nema hversu upplagt það sé að mæta á þetta í kvöld

…sérstaklega ef þið hafið áhuga á friðarmálum eða langar bara einfaldlega til þess að reyna við gáfað fólk

Uncategorized

Þegar ég var föst í Stokkhólmi með Kierkegaard og rauðvínsflösku

February 18th, 2008

Eins og hryglandi aumingi
reyni ég að skreiðast tiltölulega snemma upp úr rúminu
til að byrja að skrifa ritgerð um nokkrar af kenningum Søren Kierkegaards.
Ástæðan að hann var fyrir valinu er ekki trúarhiti minn
-sem er langt fyrir neðan frostmark
heldur að hann gerðist félagi minn þegar ég sat ein á hótelherbergi í Stokkhólmi
með litla rauðvínsflösku,
lélega sjónvarpsdagskrá,
súkkulaði
og vonaði að tíminn myndi líða aðeins hraðar fram að brottförinni sem var daginn eftir.
Gaman að vera föst ein í útlöndum
eins gott að ég var ekki með Nietzsche með mér líka…

Á laugardaginn reyndi ég að selja heimspeki sem mest töff fag í heimi
illa sofin og rykug
eignaðist gulan bol
og þekkti ekki rektorinn minn þegar hún tók í hendina á mér.

*loksins náði ég að tala meira um heimspeki en pólitík á heimspekiskralli… þetta er vafasöm staðhæfing*

Uncategorized

Að tapa kúlinu

February 14th, 2008

Í gær töpuðum við Sverrir kúlinu.
Í gær var kveikt í fyrsta skipti á sjónvarpi í rúma 7 mánuði á Baldursgötunni.
Þriðja stöðin sem við fundum var Omega
ég held að það sé á mörkunum að ég geti ekki horft á sjónvarp á eigin heimili sem nær Omega
en ég held að maður nái í raun alltaf Omega
sama hvað.

Við höfum ákveðið að kalla það “viðtæki”
til að geta haldið í smá sérvisku
og reynt að plata fólk um þetta sé alls ekkert sjónvarp.
Foreldrar okkar fá þó góðar þakkir fyrir að fá þetta forláta viðtæki lánað hjá samkennara sínum
…þó að það valdi því að við töpum kúlinu

*ég er að fá hálsbólgu og ætti að vera að lesa Nietzsche en ekki að drekka danskan bjór og hanga á netinu*

Uncategorized

Villti tryllti Villi er ekki sniðugur kall

February 11th, 2008

Mér finnst þetta bara ekkert sniðugt
ekki einu sinni grátbroslegt.
Var það heldur aldrei.
Ætlar hálfvitaskapnum í Villa aldrei að ljúka?
Er þessum manni, sem viðurkennir þó að hafa gerst sekur um “klaufaleg mistök”, stætt á að senda svona yfirlýsingu frá sér?
*Jörð til Valhallar! Halló! Halló! Það getur ekki verið að þið séuð sátt við þetta!*

Ég verð að taka undir með dr. Gunnar þegar hann syngur í laginu Gamli góði Villi:
“…í tvemur orðum sagt, fokk off!!”
“…æi þegiðu maður, djöfull ertu leiðinlegur!”

Uncategorized

Næturfjör og settleg orðaskipti við SUS-ara

February 10th, 2008

Ég er bókstaflega farlama eftir óseðjandi dansgleði gærkvöldsins.
Eins og ég hafi eytt 8 mjög erfiðum klukkutímum í líkamsræktarsal Háskólans með Sigga Daða og Nonna að “pumpa byssurnar”, eins og þeir vilja kalla það.
Þykjast víst vera að breyta ímynd heimspekinema
og borða fullt af túnfisk.
Röddin mín er illa löskuð af söng og skrílslætisgóli,
líður eins og ég hafi verið að dröslast heim eftir 3 daga kindasmölun og viskídrykkju.
En nei, ég var bara niðrí miðbæ Reykjavíkur að skemmta mér konunglega með hinum elskulegu byltingarbörnunum í RORUVG.
-ég fæ brjóssviða af Southern Comfort

Í gær varð ég annars vitni af mjög athyglisverðu atriði inn á Ölstofunni.
Þar rekumst við Auður (sem er hetja gærdagsins því hún stóð manna og kvenna lengst) á ónafngreindann guðfræðing og SUS-ara. Fyrst eftir að hafa ásakað mig um að vera í Sjálfstæðisflokknum
*takk, ég fór sko grátandi í rúmið*
þá vatt hann sér, nokkuð ölvaður í sjúklegum þrengslum (sem virðist einkenna Ölstofuna), upp að Auði og eftirfarandi orðaskipti fara fram:
Ónafngreindur SUS-ari: “Þú ert öfgafeministi og munt aldrei gifta þig!”
Auður: “Ég er gift fíflið þitt!”
Ónafngreindur SUS-ari: “OJ!!”

Oh hvað SUS-arar geta verið settlegir
eða var þetta kannski guðfræðingurinn í honum?

Uncategorized

Mótmælapartý….

February 8th, 2008

302887355.jpg

*coming up next: Gaukur á stöng er helvítis skítabúlla!*

Uncategorized

Að borða ryk

February 6th, 2008

Hvað ætli maður borði mikið af ryki yfir ævina?
- svona óvart en ekki útaf því að brjálaða gellan í “fat-fighters” heldur því fram að það sé mjög kalóríusnautt fæði
Ætli maður andi ekki að sér meira ryki en maður borðar.
Lungnaryksugur… einhver?

Ópólitískar pælingar þessa dagana hjá mér
enda stúdentakosningarnar það sem virðist vera í tísku núna.
Ég fór og kaus í dag.

*Barnsát hlýtur að vera verra, gereyðingarvopn drepa þó alla jafnt*

Daginn sem fréttir frá öðru landi byrjuðu að berast aftur
hækkaði gæðastuðullinn í bloggheimum alveg gríðarlega.

Uncategorized

Eru lífið áhugaverðara hjá öðrum í augnablikinu? Alla vega heitara…

February 4th, 2008

Áður en ég leggst í rósótta hægindastólinn minn og fer að lesa í nýjustu eign minni
Uggur og ótti eftir Kierkegaard,
þá vil ég benda öllum áhugasömum um Indland á bloggið hennar Katrínar sem dvelur nú í Indlandi með kærastanum.
Athyglisvert.

Uncategorized