Archive

Archive for March, 2008

Eirðarleysi og tómleiki

March 30th, 2008

Ég er full af eirðarleysi
en samt svo tóm.
Ég er í mótsögn við sjálfa mig…

Flott árshátíð með hágæða heimspekifólki á föstudaginn,
verst að myndavélin mín varð batteríslaus þegar fólk var að komast í alvöru myndartökustuð
svo sumir urðu útundan
og náði ekki að mingla á sanngjarnan hátt.
En so be it

Nóttin eftir var tileinkuð UVG-útgáfufagnaði með þeim sem endust lengst
og kjánalegum hlutum á Ölstofunni.

Gærdagurinn í nokkrum hugtökum og orðum:
Bland í poka, walk of shame, ættingjaheimsóknir, tvöföld sturtun, pizza&bjór, dúbíus samræður, mjög óvæntur gestagangur ásamt skipulögðum, gisting
og Auður; djöfull er maðurinn þinn hávær

Uncategorized

Að þjófstarta á páskaegginu

March 21st, 2008

Eftir að hafa horft á þetta
langar mig til að þjófstarta á páskaegginu mínu
…oki mig langaði líka alveg að gera það áður en ég sá þetta…

Ætlaði að setja inn nokkrar nýlegar myndir,
en þar sem í ljós kom að ég var á þeim flestum þá hætti ég við.
Það eru alveg takmörk fyrir því hversu “egósentrískur” maður getur verið í einu bloggi.
Mynd af okkur Steinunni að mótmæla 15 mars mun duga í bili í staðinn fyrir fleiri orð…

DSC00686.JPG

*Gleðilegt páskaegg*

Uncategorized

Bitvargur bítur frá sér…

March 12th, 2008

Á erfitt með að blogga þessa dagana.
Finnst ég ekki hafa neitt að segja,
eða alla vega ekkert nógu blogg-merkilegt.
Svo þögnin hefur verið tekin á þetta, enda ekki óþekkt trix í þessum heimi,
þó það verði að teljast mjög ómerkilegt á tíðum…
Er með hálsbólgu, uppfull af eirðarleysi, einhverri reiði, einhverjum pirringi
og haldin leiða á tilverunni og ákveðnum hluta mannfólksins..

Mótmæli á laugardaginn kl 13:00 á Ingólfstorgi gegn stríðinu í Írak.
Það er skylda fyrir alla með siðferðiskennd að mæta!
Það er sjúkt að þetta sé ennþá í gangi.
Stríðinu verður að linna!

“But watch that one falling in the street
See him gesture to his neighbours
See him trampled beneath their feet
All outward motion connects to nothing
For each is concerned with their immediate need
Witness the man reaching up from the gutter
See the other stumbling on who does not see”.

Ég er sammála Nick Cave í As I Sat Sadly By Her Side
mannskepnan er almennt sér ekkert svo falleg.
Finnst að allir ættu að lesa Simone Weil,
hlusta á Nick Cave og Tom Waits.
Svona ef það eru einhverjir þarna úti sem eiga erfitt með að ná þessari staðreynd.

*já ég bít… deal with it*

Uncategorized

Vil ekki sjá myntu frá Ísrael!

March 7th, 2008

Labbaði áðan út í Bónus
ætlaði að versla mér myntu í mojito.
Komst að því að Bónus á Laugarveginum selur bara myntu frá Ísrael! Nei takk fyrir, þá drekk ég eitthvað annað!
Það kemur sko ekki til greina að ég versli vörur frá þvílíkum morðhundum og mannréttinda-niðurtröppurum.
Ég skakkalabbaðist út við illan leik,
gleymdi hvað mig vantaði sárast og keypti bara óþarfa.

Ögmundur kemst vel að orði um framferði Ísraelsmanna og hvaða hryllingur er að eiga sér stað á Gaza hér í þessari ræðu sinni sem hann hélt á mótmælunum síðasta miðvikudag.
Fólk felldi víst tár…

Svo það verður ekkert mojito á eftir,
annað hvort cuba libre eða la renard,
sem glöggir lesendur muna án ef að var hannaður af barþjóninum hárprúða, a.k.a. Skúla
…ætli það verði ekki tófan heillin

Uncategorized

Það er lægð…

March 6th, 2008

Í gær átti Þórunn afmæli
til hamingju með gærdaginn stelpa!
Í gær drukkum ég, Auður og Þórunn slatta af bjór og unnum fáeina í viðbót í mjög, mjög fámennu rösquizi.
Það var fjör.

Það er lægð
mér finnst ég finna óþægilega mikið fyrir henni.

Í Fréttablaðinu í dag var birt mjög áhugaverð grein eftir Finn Dellsén um “varnarmála”frumvarpið (varnarmál eru í raun leyniorð ríkisstjórnarinnar yfir hernaðarmál). Í greininni er tekið á kostnaði hernaðarmála og útgjöldum við tilvonandi Varnarmálastofnun, sem er nýjasta áhugamálið hjá Ingibjörgu Sólrúnu.
Mér verður flökkurt að hugsa til þess að á meðan heilbrigðiskerfið er svelt fara yfir 1500 milljónir í hermál á friðartímum.

Já það er lægð…

Uncategorized