Nú hef ég setið föst við skrifborðið mitt síðan kl 7 í morgun,
með þykka bók og
nauðgað tölvunni minni stanslaust.
Er komin með vöðvabólgu.
…ég að fara í próf á morgun.
En það er minnsta vandamál í geimi núna og ég hef engan áhuga að væla baun yfir því.
Það sem er uggvænlegt er ástandið í heilbrigðiskerfinu
- já, svona fer það þegar ránfuglinn kemur klónum í heilbrigðismálin
og þetta sjóðbullandi hagkerfi sem er löngu komið útaf veginum
- ef það var þá einhvern tímann inn á einhverjum skynsamlegum vegi
Ég er vel farin að finna fyrir verðhækkunum í matvörubúðum
og hef komist að þeirri niðurstöðu að matur hlýtur að vera munaðarvara samkvæmt verðlagi hér á landi og mínum persónulega fjárhag og því tekið þá ákvörðun að hætta að borða…
alla vega hætta að kaupa inn,
þetta er augljóslega algjört bruðl!
- er ekki líka hent of mikið af matvælum sem er í skítsæmilegu lagi?
Spurning um að skora á Hildi Eddu í hlaupakeppni þar sem hlaup eru henni svo mikið hjartans mál. Að vísu gæti ég trúað því að við séum báðar svo þrjóskar að við myndum hlaupa okkur til ólífs í slíkri keppni…. alla vega ég.
*Frekar kjánalegt þegar hárið þitt er með ljótuna en afgangurinn af sjálfri þér ekki.
Já ég var að persónugera hárið mitt.*
Þar sem ég er í hundleiðinlegum prófalestri á náttfötunum upp í rúmi á meðan sólin skín sínu skærasta
þá hef ég enga umfram orku til að eyða í reiðar bloggfærslur
þó ég gjarnan vildi.
Svo ég ætla að gefa Þórunni og Ella orðið.
Mikið finnst mér þetta frábært framtak. Beinar aðgerðir eru töff…
Jebb ég er á jútúbinu
ásamt Auði, Steinunni og Steingrími að ræða ískyggilega NATO-væðingu Íslands.
Alvarlegt mál
enda er ég með alvarlegri manneskjum í þessu myndbandi
…Erlu finnst að ég eigi að fá mér einhvern til að svara í símann fyrir mig núna…
Þar sem annar hver bloggari hefur bloggað um hamagang gærdagsins og mótmæli vörubílstjóra,
þá ætla ég að gera örlitla tilraun til að tolla í tískunni í bloggheimum.
En bara örlitla,
ég skapa mína eigin tísku.
Ég styð almennt séð mótmæli, þó að ég sé hugsanlega ekkert sammála mótmælendum og þeirra málstað eða aðferðum. En ég get ekki stutt að farið sé fram með ofbeldi. Sama hvort mótmælendur eiga í hlut eða lögreglan. Þegar verið er að mótmæla í lýðræðisríkjum þá á ekki ofbeldi að þurfa að brjótast út.
Svo ég ulla á báða hópa
og held áfram að læra
og stöff…
Fór í bíó seint í gærkvöldi með hinum dömunum í feminíska leshringnum sem ég er í.
Þetta var erfið bíóferð.
Ekki vegna alls óþarfa hávaðans sem náðist að framkvæma á meðan áhorfinu stóð
heldur vegna myndarinnar; Lake of Fire
Í stuttu máli sagt er þetta svarthvít heimildarmynd um átökin í kringum fóstureyðingar í Bandaríkjunum síðustu áratugi.
Þetta er ekkert grín
Öðru megin eru það pro-choice sem eru á því að fóstureyðingar eigi að vera löglegar áfram og að konur eigi rétt á því að velja hvort þær gangi með fóstrið eða ekki.
Svo hefurðu trúarofstækisfanatíkerana (aðallega eldri karlmenn, líklegast kjósendur repúblikana, frá Suðurríkjum Bandaríkjanna) sem hafa barist hatrammri og blóðugri baráttu fyrir afturhvarfi í lagasetningum og kúgun kvenna í mörg ár.
Lið sem er svo hræsnisfullt upp til hópa að því finnst það í góðu lagi að fólk sé tekið að lífi í fangelsum, drepið í styrjöldum, að börn svelti til dauða í þróunarríkjunum en mega ekki heyra á það minnst að fóstrum sem konur kæra sig ekki um að ganga með sér eytt. Því það er að ganga gekk lögum guðs í þeirra augum, og þeir sem gera það munu brenna í helvíti og eru réttdræpir.
Mörgum sem eru pro-life megin finnst það fullkomlega réttlætanlegt að myrða lækna sem framkvæma fóstureyðingar og sprengja upp heilsugæslustöðvar þar sem aðgerðir eru framkvæmdar, því slíkt verk er guði þóknanlegt.
Að vísu veit ég ekki hvernig staðan er á þessum málum núna þarna úti því ég held að yngsta efnið í myndinni hafi verið frá árinu 2003.
En ég er staðráðin að leggjast í að fræða sjálfa mig rækilega um þetta allt þegar prófin eru búin.
Ég þakkaði mínu sæla yfir að búa á Íslandi þegar ég gekk út í nóttina ásamt hinum skvísunum
okkur var öllum mikið niðri fyrir.
Ég hef tekið þá ákvörðun að hætta alfarið öllum mínum viðskiptum við hið velþekkta fyrirtæki, Símann.
Ástæðan er viðbjóður minn á þessu nýja lagi Meira frelsi með Merzedes Club og myndbandinu við það sem er að tútna út af appelsínugulum, sterabryðjandi vitleysingum með aflitað hár og
kjánalegu og sveittu kvenfólki.
Ég lít á þetta sem lágmenningu af verstu sort sem ég get ekki annað gert en fyrirlitið,
vegna vitsmuna minna og lámarkskrafna til fyrirtæka sem ég er í viðskiptum við.
Og ég neita að taka þátt í að fjármanga slíkan fávitaskap sem er langt fyrir neðan mína virðingu.
Jújú, fyrirtæki mega endilega fara og gera falin auglýsingamyndbönd með mönnum sem ég lít á sem fífl,
en það verður ekki fyrir mína peninga!
Enda er það fullkomlega ótækt að fólk í vandamiklum stöðum í umboði þjóðarinnar skuli vera að eyða skattpeningi almennings í að leigja einkaþotu til að láta skutlast með sig á fund morðingja og glæpasamtaka þegar efnahagsástandið í landinu er með skelfilegasta móti.
Það dynja á manni heimsendaspár úr öllum hornum í stórum stíl í hverjum degi
svo maður þorir varla út úr húsi.
En það væri náttúrulega ekkert spennandi við það að fram úr rúminu á morgnanna ef allt væri ekki alltaf á leiðinni til fjandans hvað úr hverju.
Hannes Hólmsteinn fékk léttann kinnhest og ávítur
…og sekt að auki.
Skamm Hannes