Þá er ég loksins búin að upplifa jarðskjálfta.
Kjánalega lengi að átta mig á því,
hélt að þetta væri loftpressa
eða vörubíll í næsta garði að spæna upp blómabeðið.
Finn til með því fólki sem þarf núna að standa í því að týna brotnar eigur sínar upp af stofugólfinu.
Ég ætla aldrei að flytja í Hveragerði eða á Selfoss.
Þurfti samt ekki jarðskjálfta til að sannfæra mig um þá ákvörðun mína.
Komst að því á föstudaginn að mér finnst kókómjólk ennþá algjör viðbjóður,
sorrí strákar, alla vega allir þeir sem ég þekki og elska kókómjólk,
þið megið eiga þetta sull í friði.
Fór í sveitina um helgina,
það var fínt fyrir utan að ég vildi ekkert fara aftur suður úr Smiðsgerðis-sælunni.
Er að hugsa um að “leyfa” mér að eyða a.m.k. heilum mánuði í sumarfrí næsta sumar eftir að hafa klárað BA í heimspeki.
Vá ég á bara eftir eitt ár í BA…
óhugnanlegt.
Sem minnir mig á að ég hef ekkert montað mig af einkunnunum mínum hérna á blogginu,
þær voru í stíl við þær sem komu fyrir jól
og ég gæti ekki verið sáttari.
Að vísu er fjárhagurinn með fátæklegasta móti,
en það er fínn maturinn í nýju vinnunni minni á sambýlinu.
Og ég á góða að,
fór áðan í heimsókn til Láru og Óla ,
borðaði tekexið og ostinn þeirra.
Kannski kíki ég næst á Steinunni og Kristján Ketil og borða tekexið þeirra…
*úff, hvað þetta er óspennandi færsla hjá mér, skal reyna að láta svona lagað ekki koma fyrir aftur*
Uncategorized
Konan fyrir framan mig í apótekinu keypti sér hnefafylli af sprautunálum.
Ólukkuleg
og hvarf inná Mónakó.
Ég efast stórlega um að þar sem mikið um blóðsýnatökur eða dýralækningar.
En hvað veit ég svosem…?
Aldrei komið þarna inn
*Byrjaði annars í nýrri sumarvinnu í gær, athyglisvert*
Uncategorized
Skammast mín
sálgreindi júróvision í glæsilegu matarboði áðan…
þeir sem hafa áhuga á því geta bara haft samband.
Annars er það mjög áhugavert og um leið brjálæðislega pirrandi að fylgjast með fylleríslífinu þegar maður er sjálfur ekki hluti af glaseygðri hjörðinni.
Ótrúleg viðurstyggð en um leið svo dásamlegt að horfa upp á ástandið rúllandi í skít og glerbrotum.
Áfengi fer misjafnlega vel með fólk
en takk fyrir friðarsleikinn!
Uncategorized
JÓ!
Ætla ekki allir að mæta föstudaginn eftir viku, 23 maí?
Kjörið tækifæri til að komast í sleik!
Það vantar meiri ást í þennan heim

Uncategorized
Hver elskar það ekki þegar gaurinn í búðinni daðrar pent við mann?
“Svona fallegar konur eins og þú ættu að vera kallaðar englar”
Bætir alveg upp fyrir það að hafa brotið lýsisflöskuna í morgun,
sko stóra lýsisflösku.
Og týnt öðrum púðanum á heyrnatólunum mínum sem notast vanalega fyrir utan heimilið
við vasadiskóið (a.k.a. ipodinn).
*próf- og ritgerðarlok…. einhver?*
Uncategorized
Ég er fangi tungumálsins,
- er ekki stolt af stærð klefa míns
og þoli ekki við,
lifandi í blekkingunni
svo ég lem hausnum við kalda og hrjúfa steinsteypuna
- aftur og aftur
þangað til ég líð útaf.
Þegar ég vakna
sný ég mér í hryllilegri örvæntingu aftur að veggnum
og
held áfram.
Þangað til að einn daginn
kemst ég í gegn,
einungis til að uppgötva að ég er ennþá stödd í fangelsi tungumálsins.
En ég hef fundið leiðina út.
Í gegnum niðurlægingu og tortímingu
er hægt að frelsa hugsunina,
-þjáning.
*já ég er með Simone Weil á heilanum*
Uncategorized
Er að reyna að skrifa ritgerð,
það gengur lítið…
ó, ó, ó
mig langar bara að fara að vinna
og sinna sumarfríinu.
“A squirrel turning in its cage and the rotation of the celestial sphere - extreme misery and extreme grandeur”
Simone Weil
*örugglega sæmilegt að vera íkorni, þeir þurfa víst ekki að skrifa ritgerðir*
Uncategorized
Djöfulsins dólgur getur stundum verið á manni.
Eftir að hafa borgar 300 kr. fyrir pappír sem sannar að ég er í námi við Háskóla Íslands,
- 300 kall fyrir stimpilgjöld og þjónustu samkvæmt þeirri sem afgreiddi mig,
fær fólk á nemendaskráningunni ekki borguð laun? Þarf það þjórfé líka?
Síðan fór ég í ónefndan banka, sem ég á ekki mín almennu bankaviðskipti við, til að taka út orlofið mitt frá mínum fyrrverandi vinnuveitanda.
Já orlofið verður greitt út í næstu viku,
ég bara þarf það núna.
En nei!
Þá kom það víst upp úr krafsinu að um áramótin hafi reglunum verið breytt og núna þurfa nemendur staðfestingu frá vinnuveitandanum til að geta fengið orlofið sitt borgar fyrr.
HA?
Hvað í andskotanum á það að þýða?
Margt skólafólk er sífellt að skipta um vinnuveitendur, á það að þurfa núna að elta þá upp í hvert sinn í staðinn fyrir að geta bara farið beint á skrifstofur þeirrar menntastofnunnar sem þeir stunda nám við?
Ég var sko ekki á því að gefa mig með þetta, því hvorki bankagaurinn sem ég talaði við um orlofið mitt í síðustu viku sagði mér frá þessari breytingu né konan á nemendaskráningunni þó að ég hefði sagt henni afhverju ég vildi fá staðfestingu á skólavist. Síðan hef ég engin tök á því að skreppa rétt aðeins uppá Grundartanga til að fá eitthvað skitið útprent þar líka (og eldsneytið er nú ekkert gefins frekar en stimpilgjöldin)
Og búin að borga 300 kr. fyrir andskotann ekki neitt.
Svo ég gerðist dólgskvendi mikið,
var erfið, pirruð og uppveðruð (eins og fólk er einatt þegar það er í prófatörnum og síðasta prófið gekk ekki alveg nógu vel og hárið er úfið eftir rigningu)
og reif mjög settlega og passlega kjaft.
Það var hlaupið til
hringt upp á Skaga
og málunum var reddað fyrir dólgskvendið.
Ég fékk mest allt orlofið útborgað
og hélt helvítis staðfestingarplaginu (þó ég hafi ekki hugmynd hvað ég á að gera við það)
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég gerist dólgskvendi inn í bankastofnunum,
það virkaði alveg jafnvel síðast,
þá var hringt í mig og fýlan sleikt úr mér.
Það er stundum hægt að vinna litla og persónulega sigra á kerfinu.
*leið svolítið eins og Ástu hardcore þegar ég steig aftur út á votar götur Austurstrætis og horfðist í augu við heiminn. Já reyndu bara helvítið þitt*
Uncategorized
Oh
mig dreymir um að vera eins og George Orwell
… bara mun sætari
En ekki að því sé haldið fram að ég sé of vitlaus
og sakleysi mitt
og auðsveipni svo spillt af samfélaginu
og bitrum feministum
að ég geti ekki skilgreint hvað er vinahót og hvað er óviðeigandi.
Uncategorized