Að berjast fyrir réttindum vinnandi stétta með hoppikastala í bakgrunninum
May 1st, 2008
Til hamingju með daginn!
1. maí er baráttudagur vinnandi fólks
og skal í heiðri hafður.
… og það ekki með hoppiköstulum
eða trambólínum.
Til hamingju Erla mín með að vera loksins komin með kommúnusíðu.
Mikill heiður að fá þig í hóp kommúnubúa.
Upplifaði nýja hluti í gær í einu ótrúlegasta partýi sem ég hef farið í.
Róttækir feministar eru sko ekkert að djóka.
já til hamingju með daginn, ég vil fara að hittast, það er orðið fremur langt síðan stóra frænka, hringdu í mig við tækifæri, við getum fengið okkur bjór !
Hæhæ skvís
velkomin heim aftur, alveg rugl að hafa ekki ennþá hitt þig! Það verður deit hjá okkur eftir prófin hjá mér, verð líka í rvk í allt sumar
Var mikið af fullorðnum öreigum í hoppikastalanum? Er svona loftkastali ekki í lagi fyrir krakkagreyin sem ekki nenna að hlusta á Ömma frænda predika og skilja hann ekki? Réttindabaráttan ÞARF ekki að vera leiðinleg
Ég held að fullorðnir öreigar eigi að halda sig frá trambólínum en hoppikastalar væru kannski einmitt lausnin fyrir þá. Hugsið ykkur hvað einn slíkur hefði getað gert fyrir stemminguna við Rauðavatn.
ég segi nú bara hvers eiga öreigar að gjalda að fá ekki einu sinni að njóta hoppikastalanna.
,,En oftast er það sá,
sem allir kvelja og smá,
sem mesta mildi á.
Fáir njóta hoppikastalanna,
sem fyrstir pumpa þá.”