Sparkað í liggjandi…
Moggabloggið liggur niðri vegna bilunar.
Vitsmunir bloggheimsins hafa stóraukist síðustu klukkutíma vegna þessa.
Vonandi mun það liggja sem allra lengst
og emja…
við skulum sparka svolítið í það á meðan.
Moggabloggið liggur niðri vegna bilunar.
Vitsmunir bloggheimsins hafa stóraukist síðustu klukkutíma vegna þessa.
Vonandi mun það liggja sem allra lengst
og emja…
við skulum sparka svolítið í það á meðan.
Ég get nú ekki verið minni manneskja en margur annar
og lýsi hér með yfir frati á Ólaf (háttvirtan forseta)
og Þorgerði Katrínu (ekki jafn háttvirtan menntamálaráðherra, er nefnilega alltaf til í að lýsa yfir frati á hana)
og fylgdarlið þeirra,
að ætla að þiggja boð á Ólympíuleikana í Peking sem opinberar persónur í umboði Íslands.
Fólk sem er í sínum störfum einungis vegna stuðnings kjósenda.
Var það ekki nógu slæmt að fá Mörthu Stewart í mat?
Frá því að ég fór út á almennan vinnumarkað þá hef ég aldrei komist í dagvinnu.
Mig dreymir nánast orðið um dagvinnu og frí um allar helgar á sumrin, en spurning hvort ég muni höndla það sem ég hef aldrei prófað.
En mikið er vaktavinnan farin að fara mikið í taugarnar á mér.
Ég er á næturvöktum yfir alla helgina (fíla reyndar næturvaktir nokkuð vel).
Það sem mig langar miklu frekar að gera í staðinn er eftirfarandi:
- fara á Grundfirska daga að knúsa Mána og fjölskyldu.
- fara á Mugison-tónleikana sem eru á Nasa í kvöld
- fara á tónleika karlahóps feministafélagsins á Organ í kvöld
- njóta þessarar sólar sem er verið að spá núna um helgina en ekki reyna að sofa hana af mér
*Fuss og svei*
… en jæja ég geri þó ekkert af mér á meðan, spara, horfa á Batman Begins og klára að lesa Don Kíkóta. Alveg allt fullt af jákvæðum punktum!
Er þetta ekki einum of mikið stóra bróðurs-syndrom?
Ég yrði nú ekki ýkja hrifin ef ég yrði krafin um fingraför næst þegar ég fer á eitthvað af vinsælli öldurhúsunum í miðbæ Reykjavíkur.
Og ég tel mig nú ekki hafa neitt óhreint mjöl í pokahorninu, hvað þá mjöl yfirleitt.
Mér var hreint ekkert um það gefið þegar ég þurfti að tjékka mig og farangurinn inn með þumalfingursfari mínu í innanlandsflugi milli Stavanger og Osló í Noregi.
Ætli að það sé ekki ennþá til eftirprentun af þumlinum mínum hjá ónefndu flugfélagi í Noregi núna.
*big brother is watching you*
Ég græt mig enn þá í svefn útaf dauða Múrsins
Hann er enn þá nr. 4 í bookmarks-röðinni í makkanum mínum.
…god damm
Aftur á móti þekki ég ekkert sérstaklega vel til Berlínarmúrsins
nema bara úr sögubókunum,
var rétt að verða þriggja ára þegar hann féll.
Maður saknar ekki þess sem maður þekkti ekki.
*fnæs og snökt*
Mér finnst þetta sjúkt.
Þetta er algjörlega ómannúðlegt og í raun eitt form pyntingar,
að brjóta fólk niður andlega
og láta það fyllast skelfingar um líf sitt með bundið fyrir augun.
Og þessar útskýringar, afsakanir, lýsingar eða hvað sem þetta átti að vera hjá konunni í myndbandinu frá Reuters fréttastofunni eru í einu orði sagt alveg fáránlegar.
Ég fékk sorglega mikinn kjánahroll að hlusta á þetta þvaður…
Fór í afmælið hans Ögmundar í gær…
það var glæsilegt.
Hlustaði niðurringd á Guðna líkja Ömma við lax.
Náði að læsa mig inná klósettinu, syngja veislusönginn, gera smá at í barþjóninum ásamt Þórunni og fl.
Við “ömmum” bara það sem gerðist eftir veisluna…
Annars finnst mér kattarþvottur Samfylkingarfólks varðandi álversmálin hér á Íslandi vera óttalega sorglegur.
*Svik við kjósendur? Anyone?*
Það er eitthvað spes við það að vera nánast því nakin á msn
- í opnum baðslopp þ.e.a.s.
*Eitthvað gáfulegt væntanlegt*
…ég lofa
Var að klára langa vinnuhelgi.
Það var ekki mjög spennandi.
En það þurfa kannski ekki allar helgar að vera spennandi.
Sit heima að drekka mjög skrýtið rauðvín (það bragðast varla eins og rauðvín) og borða rosalega fínt og gott belgískt konfekt sem mamma keypti út í Brussel handa mér.
Fallega hugsað.
Ég er eigingjörn og dettur ekki í hug að geyma það fyrir gesti.
Nóa Siriíus-konfektið sem ég fékk frá fyrrverandi vinnuveitanda mínum dugar í það.
Ekki svo að skilja að ég vilji ekki fá gesti og mér þyki ekki vænt um gestkomandi fólk á Baldursgötunni,
ég býð bara vanalega ekki uppá konfekt,
frekar kaffi, kaffibaunir, vínber eða bjór (einstaka sinnum kex, þegar það er til).
Hefur ekki verið kvartað hingað til.
*á veturnar eru allar helgarnar mínar spennandi, hvað er eiginlega að klikka á sumrin?*
…er of þreytt til að vera pólitísk
Var í Smiðsgerði yfir helgina.
Það var stórfínt
fyrir utan þetta skítaveður.
En það pirraði mig voða lítið.
Flaug í fyrsta sinn innanlands á Íslandi á ævi minni.
Athyglisvert,
mér fannst þetta frekar spes.
Missti næstum af því á mjög kjánalegan hátt,
svo Lára telst sem bjargvættur mikill.
Einn íbúinn á sambýlinu sagði þegar ég kom aftur eftir helgina að ég væri hetja að hafa flogið í fyrsta skipti innanlands,
held að hann hafi aðeins misskilið afhverju ég hef aldrei gert það áður.
Annars flaug ég í allra fyrsta sinn innanland í Noregi í apríl á þessu ári.
Ég er að reyna að kenna sjálfri mér að henda fötum,
það gengur ekki vel.
En eitthvað verður að fara þegar fataskápurinn er farinn að emja og liðaðst smátt og smátt í sundur.
*er ennþá smá skotin í rússneska landsliðinu, en það spænska kemur mjög sterklega til greina líka*