Persónuleg bókmenntahneisa
Var að átta mig á því að ég ætti einungis fyrsta bindið af bókmennta stórvirkinu; Hannes - Nóttin er blá mamma. eftir Óttar Martin Norðfjörð.
*Þvílík hneisa*
Var að átta mig á því að ég ætti einungis fyrsta bindið af bókmennta stórvirkinu; Hannes - Nóttin er blá mamma. eftir Óttar Martin Norðfjörð.
*Þvílík hneisa*
Ég næ ekki upp í nef mér yfir framferði Þorgerðar Katrínar, ekki háttvirts menntamálaráðherra.
Til hvers í andskotanum þurfti hún að fljúga aftur út
- með eiginmanni sínum
þegar landsliðið komst í úrslitaleikinn!
Hver var tilgangurinn?
Var ekki nóg að hafa Óla og Dorrit þarna úti til að brosa framan í myndavélar og faðma sveittu silfurstrákanna?
Að stjórnmálamaður skuli leyfa sér að fara svona með almannfé
og æða aftur út
- með eiginmanni sínum
gerir það að verkum að mig langar til að selja upp.
Mæður handknattleiksliðsins hefðu frekar átt að vera sendar út á kostnað skattborgaranna.
Þær hefðu átt betur heima í stúkunni en menntamálaráðherra
- og eiginmaður hennar.
Keypti 500 eyrnapinna í dag.
Þetta kallar maður sko stórinnkaup.
… alla vega magninnkaup.
Augljóslega hef ég ekki bloggað lengi.
Augljóslega hef ég ekki nennt því.
Augljóslega hef ég haft öðrum hnöppum að hneppa.
Augljóslega er haustið að nálgast,
skólinn að byrja og
ég fer að hætta að vinna.
Augljóslega mótmælti ég fyrir utan ráðhúsið um daginn.
Augljóslega hef ég staðið í ströngu við að muna afmælisdaga síðustu vikur.
Undanfarnar vikur;
hef ég náð að rugla sjálfri mér vel upp með slatta af næturvöktum.
Verið fleygt útbyrðis í flúðasiglingu, hugsanlega vegna dólgs.
Farið að fikta við e-bay, það er mjög hugsanlega varhugavert athæfi
þurfti bara eina andvökunótt til.
Og stöff
Svo er ýmislegt hugsanlegt, annað óvíst og sitthvað yfirvofandi.
Ég er orðin spennt fyrir vetrinum
og krosslegg fingur…
*Augljóslega er þetta ekki augljóst blogg*
Fámenn og þægileg stemming í miðbæ Reykjavíkur síðastliðnu nótt.
Yndislegt þegar allir vitleysingarnir taka sig saman í hópum
leggja land undir fót
og takast á við það verkefni að hrella landsbyggðina.
Annars grilluðum við á Klambratúninu í gær og ég skrapp á innipúkann.
Hinir færeysku Boys in a Band og Dísa komu mjög skemmtilega á óvart.
Myndir af margumtöluðu hairdúi og grillinu eru vonandi væntanlegar,
netið var með eitthvað bögg í morgun.