Archive

Archive for September, 2008

Samúðar-kreppubakstur vegna samdráttar hjá Glitni

September 30th, 2008

Fékk stúdenta-strætókortið mitt í gær,
það tók mánuð að brjótast í gegnum þetta nýja fyrirkomulag.
Vei,
mikil gleði.
Reyndi að velja kjánalega mynd sem yrði samt samþykkt fyrir svo kjánalegt ferli,
sem tók ekki nema mánuð.

Annars er margt að gerast…
mjög slæm martröð
samdráttarbakstur, bara svona til að sýna samstöðu með Glitni
- þó aðeins ofan í sjálfa mig og Þórunni (ef hún telur þær ætar)
innflutningur Þórunnar á Baldursgötuna.
- já Sverrir er fluttur út.
Landsfundur UVG á Akureyri,
skólastúss
… og vonandi internet í lok vikunnar

*Samyrkjubú Bíbí og tófunnar tekur til starfa*

Uncategorized

Vill einhver splæsa á mig 5 klukkutímum í viðbót?

September 26th, 2008

Afhverju er dagurinn ekki svona c.a. 5 klukkutímum lengri?
Mig sárvantar þessa 5 klukkutíma til geta sofið almennilega.
Svefn er orðinn að algjörum lúxus og munaði
sem uppteknir, og ekki mjög fjáðir (þó að ég viti ekki alveg hvernig fjárhagurinn kemur málinu við), heimspekinemar
með stjórnarsetu-fíkn
og veikleika fyrir því að láta plata sig út á kvöldin í hitt og þetta,
hafa barasta ekkert efni á!

…þó það yrðu ekki nema 2-3 klukkutímar
anyone?

Uncategorized

“Cogito ergo sum - komdu með mér upp í rúm”

September 24th, 2008

Mikið finnst mér það leiðinlegt þegar maður er að hringja í hin og þessi þjónustuver og fær skell af léttapoppsdægurlagasulli í skelfilegum hljóðgæðum á hljóðhimnurnar á meðan maður bíður.
Ekki vanmeta þögnina

Annars bregðast konurnar í útbúi Glitnis upp á Skaga aldrei þegar kemur að almennilegheitum og aðstoð. Alveg nauðsynlegt að gefa þeim kredit fyrir það,
annars væri ég líklegast orðin nokkuð þungbúin þegar kemur að peningamálum mínum.

Eru ekki annars allir að fara að mæta á þetta næsta fimmtudag?

Dæmi um pikk-up línur sem gætu hugsanlega virkað á heimspekinema:
*ertu Hegelisti?*
*er núverandi konungur Frakka með hárkollu?*
*Cogito ergo sum - komdu með mér upp í rúm*
*Sko, samkvæmt Heidegger…*

Uncategorized

Fauk í nótt

September 17th, 2008

Helvítis óbragð af þessari tjörn…

Uncategorized

Leiðinlega stöffið frá Wall Street

September 15th, 2008

Ekkert nema fréttir af
verðbréfamörkuðum,
viðskiptum,
viðskiptahalla,
fjármálalægð,
viðskipta-og fjármálabraski
í sjónvarpsfréttunum kl 19:00

- æi kommon, þetta er svo leiðinlegt stöff,
hvað þá að fylla heilan fréttatíma af þessu.

Ágætt þá gat ég slökkt eftir 10 mínútur

*afhverju kemst viðskiptafræðin alltaf í sjónvarpið en ekki heimspekin? Er það útaf því að hún er betri í fótbolta?*

Uncategorized

Það er fluga í rauðvínsglasinu mínu

September 14th, 2008

Bögg
eins gott að hún er dauð…

Var að spá í páfanum,
þessi gaur er fáránlega vinsæll.

En afhverju í andskotanum er ekki búið að semja við ljósmæður?
Því það er hugsanlega möguleiki á því að það sé hægt að redda fæðingum með heitu vatni, handklæði og einhverju sem gefur frá sér sæmilega birtu…
tja alla vega í gamla daga.
Á meðan geta flugumferðstjórar fjárkúgað á korteri.

*afhverju eru sunnudagar svona slappir og óspennandi dagar? Breytist það eftir þrítugt?*

Uncategorized

Skotar, skólinn, Svisslendingar og svarthol

September 10th, 2008

Aldrei séð jafn marga menn í pilsum á 2 klukkutímum eins og í dag.
Skildu þeir allir vera með allt frjáls þarna undir.?
Maður bara svona spyr…

Ég er komin upp fyrir haus í lærdómi og finnst það bara nokkuð gaman.
Fyrir utan þetta verkefni sem ég skilaði áðan,
það var voða vont.
Ég er ekkert góð í að útskýra heimspekilegar skilgreiningar á ensku.

Humm…
svo það var kannski ekkert sniðugt hjá mér að kaupa 500 stykki um daginn?

Ég hef ekki lesið blöðin, séð fréttir eða skoðað fréttavefsíður að neinu ráði síðustu 4 eða 5 daga svo ég er svolítið úrelt í augnablikinu.
Afsakið mig á meðan ég bæti úr því.

*Svisslendingar, úr, öreindarafall og svarhol*

Uncategorized

Sökum huggulegheita feminískra fljóða

September 9th, 2008

Sökum huggulegheita þá verð ég að krækja í þessa færslu hjá henni Þórunni minni, verðandi rommate.

Takk fyrir æðislegt matarboð feminísku skvísurnar mínar.
Þær Laufey og Drífa sem eru ekki á myndinni vegna óviðráðanlegra aðstæðna
var sárt saknað.

Uncategorized

Er meira fyrir skóla en vinnu

September 3rd, 2008

Ég er svo glöð yfir því að vera mætt aftur í skólann.
Finnst allt svo spennandi,
skemmtilegt,
þægilegt
og sé fram á nóg að gera.

Að mæta upp í Soffíubúð eftir sumarið
er eins og að ná að sleppa út í heita pott eftir tilbreytingarlítinn en sæmilegan sundsprett.
Sumarið er bara því miður ekki jafn aktívft tímabil hjá mér og veturinn.
Ég kann alveg að meta sumarið
þá er hlýtt
og ég er rosaleg kuldaskræfa.
En ég kem bara svo miklu meira í verk á veturnar.
Fíla mig líklegast bara betur á skólabekk en að þurfa mæta í vinnu.

Uncategorized