Er meira fyrir skóla en vinnu
September 3rd, 2008
Ég er svo glöð yfir því að vera mætt aftur í skólann.
Finnst allt svo spennandi,
skemmtilegt,
þægilegt
og sé fram á nóg að gera.
Að mæta upp í Soffíubúð eftir sumarið
er eins og að ná að sleppa út í heita pott eftir tilbreytingarlítinn en sæmilegan sundsprett.
Sumarið er bara því miður ekki jafn aktívft tímabil hjá mér og veturinn.
Ég kann alveg að meta sumarið
þá er hlýtt
og ég er rosaleg kuldaskræfa.
En ég kem bara svo miklu meira í verk á veturnar.
Fíla mig líklegast bara betur á skólabekk en að þurfa mæta í vinnu.
Samt ansi líklegt að þú komir til með að “þurfa” að mæta í vinnu innan fárra ára
sad but true