Archive

Archive for October, 2008

Nýr forstjóri Kaupþings

October 21st, 2008

Ég er stórlega hneyksluð í svefnleysinu!

Það er hugsanlega ekki hægt að borga þeim starfsmönnum Kaupþings sem sagt verður upp á næstunni vegna timburmanna fjármálafyllerísins, þriggja mánaða uppsagnarfrestinn.
En á meðan getur nýr forstjóri Kaupþing, Finnur Sveinbjörnsson, þegið hátt í tvær milljónir í laun!

Sem er náttúrlega ekki neitt handa karlgreyinu miðað við það sem sá á undan var að fá.
Hann getur bara ekki lofað þessu með uppsagnarfrestinn,
greyið.

Andskotinn hafi það…

Uncategorized

Gefandi og uppbyggileg lesning í kreppunni

October 20th, 2008

Heyrst hefur…
“að Lárus Welding taki slátur í ár”

Og hver segir svo að Séð og heyrt sé ekki gefandi og uppbyggilegt blað?

Uncategorized

Made in Russia

October 15th, 2008

Langt síðan síðast.
Enn þá myrkur á stigaganginum.
Það eru sagðir kreppubrandarar í eldhúsinu.
Hagkerfið hrunið.
Ríkið stjórnar bönkunum.
Bretar hata okkur.
Pútín er orðinn vinur minn á feisbúkk.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stefnir hraðbyr í að “bjarga” okkur.
og sænska Ikea glasið mitt er made in Russia

Annars er ég bara í miðannarprófum sem ég næ lítið að tjónka við…

Uncategorized

Meyjardyngja fyrir rum-mates

October 2nd, 2008

Það er greinilegt að minnsta kosti einn borgarstarfsmaður les bloggið mitt
því það var búið að slökkva á gosbrunninum þegar ég labbaði heim í gær.
Vá, heppin ég!

Annars er Þórunn flutt inn með búslóðina sína
og öll fötin sín.
Svo íbúðin er að springa þar sem Sverrir á eftir að taka slatta í viðbót.

Þannig við erum opinberlega orðnar “rum-mates”
En það verður ekkert partý fyrr en eftir landsfund UVG á Akureyri um helgina
og þegar það er búið að grysja stofuna.

*mig farið að lengja eftir þessu interneti*

Uncategorized

Gosbrunnur saurgerlanna

October 1st, 2008

Getur ekki einhver slökkt á þessum helvítis gosbrunni í tjörninni?
Þetta frussast út um allt í rokinu.
- hefur þetta lið í Óráðshúsinu einhvern tímann þefað af þessum mengunarpytt sem tjörnin er orðin, hvað þá smakkað án þess að hafa fengið neinu um það ráðið?
Ég get ekki hugsað annað en;
saurgerlar
saurgerlar
saurgerlar,
þegar ég fer upp í Háskóla og heim aftur.
Jakk!

Ég mæli með “Betlarar éta það sem býðst” eftir Hnakkus um atburði síðustu daga
- og þetta til léttra dægrastyttinga á þessum umrótatímum

*…maður er náttúrlega enginn Lárus Welding*

Uncategorized