Nýr forstjóri Kaupþings
October 21st, 2008
Ég er stórlega hneyksluð í svefnleysinu!
Það er hugsanlega ekki hægt að borga þeim starfsmönnum Kaupþings sem sagt verður upp á næstunni vegna timburmanna fjármálafyllerísins, þriggja mánaða uppsagnarfrestinn.
En á meðan getur nýr forstjóri Kaupþing, Finnur Sveinbjörnsson, þegið hátt í tvær milljónir í laun!
Sem er náttúrlega ekki neitt handa karlgreyinu miðað við það sem sá á undan var að fá.
Hann getur bara ekki lofað þessu með uppsagnarfrestinn,
greyið.
Andskotinn hafi það…
Hann var þó a.m.k. nógu mikill maður til að segja hvað hann væri með í laun og biðja svo um að lækka þau.
Skemmtilegt að önnur af þessum konum sem eru búnar að taka við bönkunum neitar ennþá að láta uppi hvað VIÐ erum að borga henni. Skiljanlega náttúrulega, hvað kemur það okkur við hvað við erum að borga henni…