Ég hef ekki tíma fyrir blogg þessa dagana.
Svo ég vísa öllum þeim sem álpast hingað inn
að fara frekar þangað til að finna róttæknina!
Öskra, hreyfing byltingasinnaðra stúdenta, á hug minn allan!
*ÖSKRA!*
Því auðvaldið dregur enn andann…
Uncategorized
Ha?
Geir!
Ingibjörg!
Viljið þið þá gjöra svo vel og drullast til að skipta um buxur!
Það er fnykur af ykkur.
*Velkomin í byltinguna*
Uncategorized
Ég er ekki fallin frá,
hef bara haft annað að gera við líf mitt en að blogga…
get engu lofað um framhaldið í augnablikinu.
Nú fer vonandi loksins eitthvað að gerast í þessum skóla!
Sjá hér
og hér
og hér.
*be on your guards*
Uncategorized
Í fjarveru Þórunnar, sambýliskonu minnar
- sem verður í því að skelfa Ameríkuna með vinkonum sínum um óákveðinn tíma
hef ég af góðmennsku minni
og fyrir félagsskapinn
tekið heimalning inn á samyrkjubúið.
Get ekki sagt annað en að þessi ráðahagur sé velheppnaður í alla staði
og komi öllum aðilum ákaflega vel.
Uncategorized
Á einhver svona alvöru oldschool gasgrímu?
Mig langar í svoleiðis,
ekki spyrja afhverju
…er í alvöru ekki að spá í að nota hana við lögreglustöðvarinnbrot
-í alvöru
Uncategorized
Talandi um veruleikafirringu
Mæli endilega með að lesa viðtalið líka
stutt og danskt,
þetta er æðislegt!
*go davíð, þú ert sko alveg það*
Uncategorized
Sit uppi með 5000 kall sem ég fékk óvænt í hendurnar fyrir útgeislun mína í kuldalegum mótmælum gærdagsins.
Hugmyndir um góðan málstað til að setja peninginn í eru mjög vel þegnar…
Uncategorized
Ekkert smá sem maður hefur afrekað í dag,
poppaði upp á mismunandi máta í öðrum hverjum fjölmiðli landsins.
Dagurinn byrjaði á því að grein eftir mig birtist í Fréttablaðinu
- hana er líka hægt að nálgast hér,
stutt setuverkfall heimspekinema hafði snögg og kröftug áhrif,
og var barasta orðin uppgefin upp úr hádegi.
Allt um setuverkfall heimspekinema upp í Soffíubúð
- forsögu og hvernig því lauk
má lesa um:
hér
hér
og hér
Málinu er þó hvergi nærri lokið og Soffíubúð er ekki enn óhullt fyrir krumlum stjórnsýslu hugvísindasviðs…
Uncategorized
Horfði uppá góða vinkonu mína engjast af kvölum með piparúða í augunum í gær…
Enginn viðvörun
bara sprautað út um allt.
Glæsilegt!
Flott!
Vonandi er Björn stoltur af ykkur
því það eru fáir aðrir það…
*ein bestu vínylplötukaup í Kolaportinu ever*
Uncategorized
Í gær varð ég vitni að óskemmtilegum gjörning löggunnar.
Í gær fóru heimspekinemar og sagnfræðinemar í vísindaferð til Samfylkingarinnar.
Hún byrjaði í Alþingishúsinu þar sem Ágúst Ólafur sat fyrir svörum en færðist svo yfir Austurvöll.
Í lok þeirrar vísindaferðar beið svo löggan í anddyrinu að þingflokksskrifstofum Samfylkingarinnar við Austurstræti og handtók einn heimspekinemann.
Sá er hinn sami og dró bónusfánann að hún upp á þaki Alþingis fyrir fáeinum vikum.
Ástæður handtökunnar… tja
löggurnar tjáðu honum að hann væri eftirlýstur vegna vangoldinna skulda,
en ég held að fólk sé alveg fært að leggja saman tvo og tvo.
Vil líka benda á fleiri blogg um þetta mál.
Sérstaklega þetta sem þekkir betur til.
Svo er þetta sem lýsir atburðarás gærkvöldsins með aðeins meiri dramatík en ég.
Uncategorized