Réttarríkið Ísland þar sem fólk er handtekið í vísindaferðum

November 22nd, 2008

Í gær varð ég vitni að óskemmtilegum gjörning löggunnar.
Í gær fóru heimspekinemar og sagnfræðinemar í vísindaferð til Samfylkingarinnar.
Hún byrjaði í Alþingishúsinu þar sem Ágúst Ólafur sat fyrir svörum en færðist svo yfir Austurvöll.

Í lok þeirrar vísindaferðar beið svo löggan í anddyrinu að þingflokksskrifstofum Samfylkingarinnar við Austurstræti og handtók einn heimspekinemann.
Sá er hinn sami og dró bónusfánann að hún upp á þaki Alþingis fyrir fáeinum vikum.
Ástæður handtökunnar… tja
löggurnar tjáðu honum að hann væri eftirlýstur vegna vangoldinna skulda,
en ég held að fólk sé alveg fært að leggja saman tvo og tvo.

Vil líka benda á fleiri blogg um þetta mál.
Sérstaklega þetta sem þekkir betur til.
Svo er þetta sem lýsir atburðarás gærkvöldsins með aðeins meiri dramatík en ég.

Þórhildur Uncategorized

Ein setning um stórt mál

November 20th, 2008

Þetta var nú stutt og endasleppt frétt um ekkert smá mál.
Gáfu sér ekki einu sinni tíma til að vera hlutdræg.

Viðbót kl 23:36 (c.a. 20 mínútum seinna). Ég var greinilega of snögg fyrir mbl.is. Þegar ég linkaði við fréttina þá var hún einungis ein setning. Síðan hafa einhverjir tekið sig til og bætt við. Samantekin ráð?

Þórhildur Uncategorized

Óheppileg orðasamsetning…

November 18th, 2008

“Dauðariðillinn”
minnir mig óþægilega mikið á orðið náriðill.

Lovely, all lovely…

Þórhildur Uncategorized

Andskotinn

November 18th, 2008

Skrifaði þessa fínu bloggfærslu áðan
og þá klikkaði netið á Samyrkjubúinu.
Gef skít í þetta.

*samantekin ráð?*

Þórhildur Uncategorized

Góður dagur í dag…

November 13th, 2008

Í dag á ég afmæli
og er orðin tuttugu og tveggja ára.
Ég er öll að bráðna vegna allrar ástarinnar sem ég hef fundið fyrir í dag,
allra góðu hamingjuóskanna (á flest öllum hugsanlegum formum),
allra knúsanna,
óvænta afmælissöngsins og kortsins frá heimspekinemunum,
litríku stígvélanna,
kökunnar (sem ég bakaði þó sjálf)
og heimsóknar foreldranna.
Síðast en ekki síst þá er ég ofsalega upp með mér að Þórunn, sambýliskona mín í næsta herbergi, skuli hafa tileinkað mér bloggfærslu í tilefnis dagsins.
Já það er gott að eiga góða að
sérstaklega á tímum kreppunnar.
Þessi frétt var líka frábær bónus við daginn.

*knús til ykkar allra, þið eruð alveg frábær*

…þarf líklega ekki að taka það fram að kvöldinu verður eytt á barnum og er alveg til í fleiri knús

Þórhildur Uncategorized

Fara ekki fleiri að fá aðeins í magann?

November 12th, 2008

Munu fleiri fá aðeins í magann eins og Bjarni Harðarson einhvern tímann á næstunni?
Er það ekki spurningin sem brennur á allra vörum núna?

Við skulum samt ekki gleyma okkur hérna,
Bjarni er enginn hetja þó að hann gefi gott fordæmi og segi af sér
hann er bara sá fyrsti sem hefur viðurkennt skunkslega framkomu sína og axlað ábyrgð á henni.

Annað hefur nú verið upp á teningnum þegar kemur að öðrum ónefndum skunkum þjóðfélagsins í gegnum tíðina…

Þórhildur Uncategorized

Þegar Bónusfáninn er dreginn að hún

November 8th, 2008

Og þá bloggaði hin reiða og byltingarsjúka aftur.

Í dag var ég niðrá Austurvelli
og mótmæli óráðsíunni, lyginni, útrásarfylleríinu, þögninni og öllu helvítis ruglinu.
Ég öskraði

Hér er hægt að sjá stutta frétt um atburði dagsins
á meðfylgjandi mynd gefur að líta mig (með nýja stutta hárið), Sunnevu og skiltið góða.
Að vísu er fréttin ekki alveg sannleikanum samkvæm,
lögreglan átt upptökin af öllum pústrum sem ég varð vitni að.
En það er ekkert nýtt þegar kemur að fréttaflutningi af mótmælum.

Ég mun mæta á næstu mótmæli og öskra meira.
Það er komið ágætt af ræðum og hugvekjum,
förum að gera hluti…

*strákurinn sem klifraði uppá Alþingi og drógu þar Bónusfánann að hún, er tvímælalaust hetja dagsins*

Þórhildur Uncategorized

Nýr forstjóri Kaupþings

October 21st, 2008

Ég er stórlega hneyksluð í svefnleysinu!

Það er hugsanlega ekki hægt að borga þeim starfsmönnum Kaupþings sem sagt verður upp á næstunni vegna timburmanna fjármálafyllerísins, þriggja mánaða uppsagnarfrestinn.
En á meðan getur nýr forstjóri Kaupþing, Finnur Sveinbjörnsson, þegið hátt í tvær milljónir í laun!

Sem er náttúrlega ekki neitt handa karlgreyinu miðað við það sem sá á undan var að fá.
Hann getur bara ekki lofað þessu með uppsagnarfrestinn,
greyið.

Andskotinn hafi það…

Þórhildur Uncategorized

Gefandi og uppbyggileg lesning í kreppunni

October 20th, 2008

Heyrst hefur…
“að Lárus Welding taki slátur í ár”

Og hver segir svo að Séð og heyrt sé ekki gefandi og uppbyggilegt blað?

Þórhildur Uncategorized

Made in Russia

October 15th, 2008

Langt síðan síðast.
Enn þá myrkur á stigaganginum.
Það eru sagðir kreppubrandarar í eldhúsinu.
Hagkerfið hrunið.
Ríkið stjórnar bönkunum.
Bretar hata okkur.
Pútín er orðinn vinur minn á feisbúkk.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stefnir hraðbyr í að “bjarga” okkur.
og sænska Ikea glasið mitt er made in Russia

Annars er ég bara í miðannarprófum sem ég næ lítið að tjónka við…

Þórhildur Uncategorized